Ákærður fyrir stórfelld umboðssvik Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. júní 2011 18:37
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur ákært Viggó Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu Sparisjóðanna, fyrir stófelld umboðssvik. Ákæran var gefin út hinn 9. júní síðastliðinn en fjögur ár eru frá því rannsókn málsins hófst vegna gruns um stórfelld efnahagsbrot Viggós meðan hann var framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu Sparisjóðanna. Brotin voru talin felast í útgáfu tilhæfulausrar ábyrgðaryfirlýsingar upp á 200 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 22 milljarða króna. Grunur leikur á að Viggó hafi misnotað aðstöðu sína hjá Verðbréfaþjónustu Sparisjóðanna og falsað eða rangfært skjöl sem beri það sem sér að eiga að stafa frá fyrirtækinu en í þessum skölum sé vísað til viðskipta sem ekki sé nokkur fótur fyrir að hafi átt sér stað á vegum félagsins. Umboðssvikin eru talin felast í því að ef ábyrgðin hefði verið nýtt hefði það valdið fyrirtækinu miklu tjóni. Það gerðist hins vegar ekki. Málið þótti afar umfangsmikið og teygir anga sína til sex landa; Bretlands, Bandaríkjanna, Filippseyja, Kanada, Grenada og Austurríkis. Viggó var gert að sæta farbanni eftir að málið kom upp frá 13. apríl 2007, alls í tæplega 23 mánuði og komu úrskurðir þar að lútandi til kasta Hæstaréttar alls 12 sinnum. Í mars 2009 felldi Hæstiréttur farbannið úr gildi og í niðurstöðunni er dráttur á rannsókn málsins gagnrýndur. Samkvæmt almennum hegningarlögum geta umboðssvik varðað allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar, en Viggó er ákærður til vara fyrir tilraun til fjársvika. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Viggós, sagði við fréttastofu í dag að ákæran hefði ekki verið birt honum og því lægi ekki fyrir hvenær málið yrði þingfest. Sveinn sagði að umbjóðandi hans myndi neita sök í málinu enda teldi hann sig engin brot hafa framið. Þá sagði Sveinn drátt á rannsókn málsins afar óeðlilegan enda hefði málið nú verið til rannsóknar í fjögur ár.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira