Uppgjörið við hrunið hér á landi án fordæma í heiminum Hafsteinn Hauksson skrifar 21. júní 2011 19:00
Stjórnarformaður Bakkavarar gagnrýnir bæði rannsóknaraðila bankahrunsins og rannsóknarskýrslu alþingis harkalega. Hann segir uppgjörið við hrunið hér á landi án fordæma í heiminum. Lýður Guðmundsson er stjórnarformaður Bakkavarar, en hann er einn þeirra sem handtekinn var í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á starfsemi vátryggingafélags Íslands undir lok maímánaðar. Hann fullyrðir að á hann hafi verið bornar fjarstæðukenndar sakir í yfirheyrslu sérstaks saksóknara. Á einum tímapunkti í yfirheyrslunni hafi Rannsóknarskýrsla alþingis verið dregin upp og spurt upp úr henni, líkt og um rannsóknargagn væri að ræða. Það mislíkaði Lýð, þar sem aldrei hafi verið rætt við hann eða aðra hjá Exista við gerð skýrslunnar, þrátt fyrir að miklu rými væri varið í fyrirtækið í skýrslunni. Auk þess sé skýrslan morandi í villum og röngum ályktunum hvað fyrirtækið varðar. Hann segir að uppgjörið hér á landi eigi sér ekki fordæmi erlendis, til dæmis hafi enginn verið ákærður vegna undirmálslána í Bandaríkjunum þrátt fyrir hin miklu áhrif þeirra í hruninu. Lýður skrifar ítarlega grein um rannsókn bankahrunsins, sem birtist í Fréttablaðinu á morgun.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira