Fær viðbótarfrest til að fjármagna kísilver í Helguvík 21. júní 2011 13:37
Íslenska kísilfélagið hefur fengið tveggja mánaða viðbótarfrest frá helstu viðsemjendum, til 15. ágúst, til að fjármagna smíði kísilverksmiðju í Helguvík. Til stóð að framkvæmdir hæfust fyrri hluta sumars en nú er ljóst að það markmið næst ekki. Samningar um verkefnið voru undirritaðir við hátíðlega athöfn í Keflavík í febrúar, að viðstöddum bæði iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra, sem sagði við það tækifæri að þetta væru mikilvæg skilaboð um að menn hefðu trú á framtíðinni á Íslandi, og iðnaðarráðherrann sagði að þetta væri ísbrjótur í atvinnumálum Suðurnesja. Fyrirvarar voru hins vegar í samningum Íslenska kísilfélagsins, meðal annars við orkufyrirtækin Landsvirkjun og HS Orku, sem átti að aflétta fyrir 15. júní, en þeir sneru einkum að fjármögnun. Magnús Garðarsson, forstjóri Íslenska kísilfélagsins, vildi í samtali við Stöð 2 í gær hvorki greina frá ástæðu þess að ekki tókst að uppfylla fyrirvarana né hve langan viðbótarfrest félagið hefði fengið, en vonaðist til að verkefnið yrði ekki nema þremur vikum á eftir áætlun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar tókst kísilfélaginu ekki að ljúka fjármögnun fyrir 15. júní og segja sömu heimildir að viðsemjendur kísilfélagsins hafi fallist á að framlengja frestinn til 15. ágúst. Vonast er til að 150 manns fái vinnu við smíði verksmiðjunnar næstu tvö ár og síðan verði til 90 framtíðarstörf þegar framleiðslan hefst.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira