Seðlabankinn gæti hagnast um hundruð milljóna 20. júní 2011 12:17 Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Seðlabanki Íslands hefur sett hámarksverð við gjaldeyriskaup í seinni legg fyrsta gjaldeyrisútboðs bankans. Það merkir að bankinn gæti fengið hundruð milljóna í hreinan hagnað af útboðinu ef þátttaka er góð. Einn af lykilþáttum nýjustu áætlunar stjórnvalda um afnám gjaldeyrishafta eru sérstök gjaldeyrisútboð seðlabankans. Útboðin eru framkvæmd í tveimur skrefum. Í því fyrra býðst seðlabankinn til að kaupa aflandskrónur af erlendum aðilum, en þannig er hægt að tappa af svokölluðu óþolinmóðu fjármagni sem óttast er að myndi yfirgefa landið við lágu gengi ef ekki væri fyrir gjaldeyrishöftin. Þessu fyrra skrefi í fyrsta útboði seðlabankans lauk fyrir tveimur vikum, en þá var verðið á evrunni tæplega 219 krónur að meðaltali. Í seinna skrefi útboðsins býðst seðlabankinn svo til að nota krónurnar til að kaupa evrur, og þannig leiðir bankinn saman gjaldeyriseigendur sem vilja inn í landið og krónueigendur sem vilja út í tveimur skrefum. Hann greiðir fyrir evrurnar með ríkisskuldabréfum sem verða í bundnu eignarhaldi til 5 ára, og þannig er óstöðugum krónueignum skipt út fyrir stöðugar. Hins vegar hefur seðlabankinn sett 210 króna hámarksverð á evruna í þessum seinni legg útboðsins. Sé málið mikið einfaldað má þannig segja að bankinn hafi selt evrur dýrar en hann hyggst nú kaupa þær. Það merkir að ef þátttaka í útboðinu er góð, þá gæti bankinn haft að minnsta kosti 9 króna hagnað af hverri evru sem rúllar í gegn, en alls hljóða útboðin upp á meira en 60 milljónir evra hvort um sig. Samkvæmt útreikningum fréttastofu gæti seðlabankinn þannig gengið frá borðinu með á milli 500 til 600 milljón króna hreinan hagnað.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Sjá meira