Spáir áframhaldandi afgangi af vöruskiptunum 8. júlí 2011 09:22
Hagstofan segir að horfur eru á áframhaldandi afgangi af vöruskiptajöfnuði á næstu árum. Samkvætm þjóðhagsspá Hagstofunnar er reiknað er með að útflutningur aukist um 2,1% árið 2011. „Ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar bendir til þess að nokkur aukning verði í kvótaúthlutun á þorski og virðast góðar líkur á auknum loðnuveiðikvóta. Reiknað er með auknum útflutningi sjávarafurða á þessu ári og því næsta,“ segir í spánni. "Hins vegar er áætlað að álútflutningur dragist lítillega saman á þessu ári vegna tímabundinna aðstæðna. Gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti í öðrum útflutningi en frá stóriðju og sjávarútvegi, þar ber helst að nefna góðar horfur í ferðaþjónustu.“ Hagstofan segir að árið 2012 er áætlað að útflutningur aukist um 3,3% sem má að mestu rekja til aukins útflutnings sjávarafurða og aukningar í þjónustuútflutningi í ljósi lágs raungengis. Árið 2013 er gert ráð fyrir 2,8% vexti útflutnings en þá mun framleiðsluaukning í Straumsvík fara að skila sér í auknum útflutningi auk þess sem kísilverksmiðjan í Helguvík verður komin í gang. Búist er við að innflutningur aukist um 3,8% árið 2011. Árið 2012 er reiknað með 4,9% vexti innflutnings en aukinn innflutningur þessi ár endurspeglar batann í einkaneyslu með innflutningi á neysluvörum og auknum ferðalögum erlendis og vexti fjárfestingar. Spáð er áframhaldandi vexti innflutnings út spátímann það er til 2016. „Reiknað er með að vöruskiptaafgangur dragist saman á spátímanum þar sem útflutningur nær ekki að halda í við aukinn vöxt innlendrar eftirspurnar. Árið 2010 var 10,6% afgangur af vöruskiptajöfnuði en reiknað er með að hann verði um 9– 10% árin 2011 og 2012 en verði kominn í 7,9% árið 2013. Þá er áætlað að viðskiptajöfnuður verði neikvæður á spátímanum vegna halla á jöfnuði þáttatekna en þáttatekjurnar innihalda vaxtagreiðslur banka í slitameðferð en gera má ráð fyrir að verulegur hluti þeirra verði afskrifaður.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira