Spáir hóflegum hagvexti fram til ársins 2016 8. júlí 2011 09:11
Þjóðhagsspá Hagstofunnar gerir ráð fyrir hóflegum hagvexti næstu árin eða um 3% á ári frá 2012 og til 2016. Þá er gert ráð fyrir að verðbólgan haldist lág og að gengi krónunnar breytist lítið á spátímanum. „Eftir tveggja ára samdrátt í landsframleiðslu sem nemur samtals um 10% er búist við að hagvöxtur verði 2,5% árið 2011. Þá verður vöxtur einkaneyslu 3,1% og fjárfestingar 15% en samneysla dregst saman um 2,6%,“ segir í spánni. „Vöxtur hófst í einkaneyslu um mitt ár 2010 og gerir spáin ráð fyrir að kaupmáttur aukist í ár og næstu ár sem viðhaldi vexti einkaneyslu. Árið 2012 er talið að landsframleiðsla aukist um 3,1%, einkaneysla 3,3%, fjárfesting 14,5% en samneysla dragist saman um 0,8%. Eftir 2012 er reiknað með að vöxtur landsframleiðslu og einkaneyslu verði nærri 3% öll árin. Frá 2014 dregur úr vexti fjárfestinga þegar kemur að lokum fyrirhugaðra stóriðjufjárfestinga. Samneysla stendur í stað 2013 en byrjar að vaxa lítillega í kjölfarið. Í upphafi árs 2011 var verðbólgan 1,8% og horfur á að hún héldist lág á árinu og næstu ár. Síðan þá hafa horfur versnað töluvert. Hrávörur hafa hækkað, en það hefur m.a. valdið hækkun á eldsneyti og matvöru. Þá hafa opinberir aðilar, s.s. Orkuveita Reykjavíkur, hækkað gjaldskrár sínar. Gengi krónunnar hefur veikst á fyrri helmingi 2011 sem ýtir einnig undir verðbólgu. Gert er ráð fyrir að gengi krónunnar breytist lítið á spátímanum. Lágt gengi krónunnar og efnahagsbati í viðskiptalöndum Íslands ásamt hækkandi verði áls og sjávarafurða styðja afkomu útflutningsatvinnuveganna. Það verður því áfram myndarlegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum eins og verið hefur frá falli fjármálakerfisins. Innflutningur eykst vegna vaxandi neyslu og fjárfestingar en útflutningur eykst einnig. Afgangur minnkar þegar frá líður vegna þess að reiknað er með að vöxtur innflutnings verði hraðari en vöxtur útflutnings.“
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira