Íslandsbanki Fjármögnun verður Ergo 6. júlí 2011 10:17
Íslandsbanki Fjármögnun tekur á morgun upp nafnið Ergo, fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka. Ergo sérhæfir sig í fjármögnun bifreiða fyrir einstaklinga, og atvinnutækja og atvinnuhúsnæðis fyrir rekstraraðila. Í tilkynningu segir að þessi breyting endurspeglar stefnu Íslandsbanka um aðgreiningu á markaði og nýjungar á sviði fjármögnunarþjónustu bankans. Nafnbreytingin mun ekki hafa áhrif á skuldbindingar viðskiptavina við Ergo og mun fjármögnunarþjónustan áfram heyra undir viðskiptabankasvið bankans. Nafnið hefur verið í eigu Íslandsbanka frá árinu 2000 og var áður heiti á verðbréfavef bankans. Jón Hannes Karlsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ergo, en hann tekur við af Ingvari Stefánssyni sem tekur við starfi framkvæmdarstjóra fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Jón Hannes er 43 ára gamall og hefur starfað hjá Íslandsbanka Fjármögnun frá árinu 2004, síðast sem forstöðumaður fyrirtækjasviðs. Hann er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hjá Ergo starfa nú 45 starfsmenn. Samhliða breyttu nafni mun Ergo kynna ýmsar nýjungar í starfsemi sinni. Ergo mun bjóða sérkjör á bílalánum til kaupa á orkusparandi bifreiðum og hvetja þannig viðskiptavini til að velja „græna“ kosti í bifreiðakaupum. Þá er í bígerð verkefni í samstarfi við Orkusetur þar sem viðskiptavinir munu geta skoðað eyðslu og útblástur bifreiða sinna á vef Ergo, borið saman eyðslu milli tegunda og margt fleira sem skiptir máli við bifreiðaeign. Það verkefni verður kynnt síðar. Í kjölfarið á breyttu nafni mun Ergo flytja starfsemi sína í nýja fjármálamiðstöð Íslandsbanka að Suðurlandsbraut 14 þann 13. júlí næstkomandi. „Þessi breyting er liður í frekari aðgreiningu fjármögnunarþjónustu bankans á markaði. Ergo mun bjóða uppá nýjungar á sviði fjármögnunar og ætlar sér áfram að vera leiðandi fyrirtæki á því sviði hér á landi. Starfsmenn Ergo hafa mikla reynslu af fjármögnunarþjónustu við fyrirtæki og einstaklinga og munu leggja sig fram við að bjóða viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka í tilkynningunni.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira