Fyrstu íbúðahúsin í 14 ár rísa á Þórshöfn 5. júlí 2011 14:36
Í síðustu viku gerðust þau tíðindi að tvö hús risu í einni svipan á Þórshöfn. Raðhúsin við Miðholt nr. 9 - 19 voru reist á örstuttum tíma í vikulokin og setja svip á nánasta umhverfi. Það munu vera fjórtán ár síðan síðast var reist íbúðarhús á Þórshöfn. Þetta kemur fram á vefsíðu sveitarfélagsins. Þar segir að íbúðirnar eiga að vera tilbúnar um miðjan október og bæta vonandi úr miklum húsnæðisskorti sem hefur staðið Þórshöfn fyrir þrifum undanfarin misseri og ár. Um er að ræða sex 93m2 íbúðir sem BM Vallá byggir fyrir leigufélagið V Laugavegur. Grafið var fyrir húsunum um páskana og hefur síðan hefur verið unnið að jarðvegsskiptum og öðrum frágangi í grunnunum. Samkvæmt vefsíðunni er rífandi gangur á Þórshöfn þessa daganna. Þar segir að athygli hafi vakið hversu mörg störf eru auglýst til umsóknar á Þórshöfn. Sveitarfélagið auglýsti eftir skrifstofustjóra, leikskólastjóra, tónlistarkennara og hjúkrunarforstjóra fyrir dvalar- og hjúkrunarheimilið, og Ísfélag Vestmannaeyja á Þórshöfn auglýsti eftir rafvirkja. Umsóknarfrestur um nokkur þessara starfa er runninn út og ráðningarferli í gangi. En fleiri atvinnutækifæri bjóðast. Nýlega var auglýst eftir tilboðum í skólamáltíðir á Þórshöfn og leitað er að fólki í alþrif á leikskólanum. Einnig hefur veitingastaðurinn Eyrin verið auglýst til sölu. Staðurinn er í fullum rekstri og selst með húsnæði, öllum búnaði og tækjum. Megináhersla er á sumarmánuðina en opið er allt árið. Með nýjum þjóðvegi til Þórshafnar eru mörg tækifæri í ferðaþjónustu.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira