Viðskipti með hlutabréf hrundu í Kauphöllinni í júní 4. júlí 2011 14:27
Heildarviðskipti með hlutabréf námu 936 milljónum kr. í júní eða 49 milljónum kr. á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í maí 11. milljörðum kr. eða 533 milljónir kr. á dag. Í tilkynningu frá Kauphöllinni segir að mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group 423 milljónir kr., bréf Marels 413 milljónir kr. og bréf Össurar 66 milljónir kr. Úrvalsvísitalan lækkaði á milli mánaða um 3,7% og stendur í 951 stigi. Heildarviðskipti með skuldabréf námu 230 milljörðum kr. í síðasta mánuði sem samsvarar 12,1 milljarða kr. veltu á dag samanborið við 9,8 milljarða kr. veltu á dag í maímánuði. Mest voru viðskipti með ríkisbréf 167 milljarðar kr. en viðskipti með íbúðarbréf námu 56 milljörðum kr. „Viðskipti með skuldabréf tóku vel við sér í júní og voru þau mestu á árinu en hlutabréfavelta var með minnsta móti,“ segir Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallarinnar í tilkynningu. „Mikil viðskipti á skuldabréfamarkaði má m.a. rekja til viðbragða markaðsaðila við tíðindum af fyrstu skuldabréfaútgáfu ríkisins á erlendum mörkuðum frá því fyrir hrun og gjaldeyrisútboði Seðlabankans. Áhrifa hefur einnig gætt af verðsveiflum á hrávörumörkuðum, sem hafa endurspeglast í verðbólguvæntingum og hvatt til hreyfinga á milli óverðtryggðra og verðtryggðra bréfa.“ Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina í júní, 35,8% (73,6% á árinu), MP banki með 18,8% (5,1% á árinu), og Saga fjárfestingarbanki með 14,6% (4,1% á árinu). MP banki var umsvifamestur á skuldabréfamarkaði með 24,1% hlutdeild (26% á árinu), Íslandsbanki með 23,9% (24% á árinu) og Landsbankinn með 21,3% (17,8% á árinu).
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira