Vinna við Búðarhálsvirkjun er á áætlun 19. júlí 2011 11:08
Byggingarvinna við Búðarhálsvirkjun gengur vel og er verkið á áætlun. Ístak vinnur að verkinu sem felst í meginatriðum í gangnagerð, byggingu stíflu og gerð stöðvarhúss. Þetta kemur fram á vefsíðu Landsvirkjunar. Þar segir að gerð hjáveituganga fyrir Köldukvísl er í fullum gangi en göngin verða tekin til notkunar nú í haust. Hjáveitugöngin munu veita Köldukvísl frá stíflubotninum meðan gerð stíflunnar stendur yfir. Verið er að þétta og undirbúa stíflugrunninn en áætlað er að vatni verði hleypt á lónið sumarið 2013. Vinna við gerð aðrennslisganga sem leiða munu vatn frá lóninu og fjóra kílómetra leið undir Búðarháls er einnig í fullum gangi. Unnið er að gerð efri hluta gangnanna en nú þegar hafa verið grafnir um 160 metrar inn í fjallið.Einnig er unnið við útgröft á stöðvarhúsgryfju sem er að mestum hluta lokið ásamt því að unnið er við ásprautun á veggi við stöðvarhús og frárennslisskurð. Gert er ráð fyrir að um 200 manns muni starfa á svæðinu að jafnaði, utan aukningar sumarið 2013 en þá verði um 300 manns að störfum. Heildarársverk sem skapast vegna byggingar Búðarhálsvirkjunar yfir allan framkvæmdartímann eru á milli 6-700. Framkvæmdir munu standa yfir næstu tvö árin en áætlað er að Búðarhálsvirkjun verði komin í rekstur fyrir árslok 2013.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira