Ríkið mun aðeins einkavæða hluta af eign sinni í bönkum 14. júlí 2011 18:42
Ríkið mun hugsanlega aðeins einkavæða hluta af eign sinni í bönkunum, að sögn forstjóra Bankasýslu ríkisins. Hann útilokar ekki að salan taki lengri tíma en gert er ráð fyrir í lögum, en vinna er nú þegar hafin við gerð söluáætlunar. Það er Bankasýsla ríkisins sem sér um að undirbúa sölu á eignarhlut hins opinbera í fjármálafyrirtækjum og gera tillögu um sölu þeirra þegar það er talið tímabært, en fjármálaráðherra tekur endanlega ákvörðun þar um. Bankasýslan vinnur nú að söluáætlun, sem verður grundvallarskjal við einkavæðingu bankanna þegar að henni kemur. Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslunnar, segir ekki seinna vænna að hefja undirbúning og umræðu um söluferlið, þó ekki liggi fyrir hvenær það hefst. Samkvæmt lögum á Bankasýslan að ljúka störfum fyrir árslok 2014, og því ætti stofnunin ekki að hafa meira en þrjú og hálft ár til stefnu. „Auðvitað er þetta ekkert órjúfanlegt," segir Elín þó um tímarammann. „Ef almennileg skilyrði eru ekki fyrir hendi til að selja á þessum tíma, þá væri sjálfsagt hægt að fresta því eitthvað. En við teljum æskilegt að hefja undirbúninginn og vanda vinnuna vel, og vonandi gengur þetta hratt og örugglega fyrir sig." Stefnt verður að dreifðri eignaraðild í söluferlinu, en meðal þess sem einnig er til skoðunar er hvort ríkið haldi hlut sínum í einhverum bankanna eftir. „Það er vel hugsanlegt, og það er eitthvað sem við viljum fjalla um í söluáætluninni og varpa fram til frekari umræðu - hvort það eigi að horfa til fordæma sem við höfum í Noregi og Svíþjóð þar sem ríkið hélt misstórum eignarhlut eftir í stærstu bönkunum eftir bankakreppuna þar á 10. áratugnum."
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira