Útgerðarfélag Akureyrar endurvakið 14. júlí 2011 15:24
Útgerðarfélag Akureyrar hefur verið endurvakið. Samkeppniseftirlitið hefur fyrir sitt leyti samþykkt kaup Snæfells ehf., dótturfélags Samherja hf., á aflaheimildum, landvinnslu á Akureyri og að Laugum og tveimur skipum Brims hf. Skrifað var undir kaupsamning þann 1. maí sl. með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að um sé að ræða fiskvinnslu á Akureyri og Laugum ásamt vélum og tækjum, ísfisktogarana Sólbak EA 1 og Mars RE 205, sem áður hét Árbakur; veiðiheimildir í þorski, ýsu, steinbít og skarkola, samtals 5.900 þorskígildistonn. Starfsmenn Brims á Akureyri og á Laugum eru um 150. Ákveðið hefur verið að nýtt fyrirtæki beri nafnið Útgerðarfélag Akureyringa, ÚA og mun Samherji formlega taka við rekstrinum eftir sumarlokanir nú í byrjun ágúst. ÚA verður rekið sem sérstakt félag innan Samherja. Yfirstjórn félaganna verður sameiginleg og mun Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, stýra útgerð ÚA. Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, mun stýra landvinnslu félagsins. „Útgerðarfélag Akureyringa á sér langa sögu og góða og skipar sérstakan sess í huga margra heimamanna. Það er að sjálfsögðu ábyrgðarhluti að taka við þessum rekstri en við munum leggja okkur fram um að hann gangi sem best," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira