Kröfuhafar Kaupþings vilja nauðasamninga 11. júlí 2011 08:01
Kröfuhafar Kaupþings vilja að leitað verði nauðasamninga til að ljúka slitameðferð bankans frekar en að óskað verði eftir gjaldþrotaskiptum í búinu. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu slitastjórnar og skilanefndar Kaupþings. Í fréttinni segir að Sem hluti af hugsanlegri heildarendurskipulagningu Kaupþings banka hf. voru fjárhagsráðgjafar sröfuhafa Houlihan Lokey (Europe) Limited og Deutsche Bank AG Risk Advisory Services fengnir til að framkvæma áreiðanleikakönnun og greiningu á eignum Kaupþings miðað við árslok 2010 og gera grein fyrir niðurstöðum sínum í skýrslu. Lokið var við gerð skýrslunnar í júní 2011 og er hún nú aðgengileg á gagnasvæði Kaupþings. „Eins og komið hefur fram áður þá eru tvær leiðir til að ljúka slitameðferð bankans á grundvelli íslenskra laga, þ.e. með nauðasamningum við kröfuhafa eða með gjaldþrotaskiptum. Núverandi slitameðferð er hinsvegar tímabundið ferli fyrir bankann,“ segir í fréttinni. „Samkvæmt íslenskum lögum getur bankinn einungis verið í slitameðferð svo fremi sem stefnt sé að því að ná fram nauðasamningum við kröfuhafa. Ef það er ljóst að ekki séu forsendur að nauðasamningum við kröfuhafa ber slitastjórn samkvæmt ... lögum um fjármálafyrirtæki að óska eftir gjaldþrotaskiptum.“ Valkostir varðandi framtíðarskipan bankans voru fyrst kynntir opinberlega á opnum fundi skilanefndar með kröfuhöfum í febrúar 2009 og á sama tíma í kröfuhafaskýrslu bankans. Ítarlegri kynning á þessum valkostum fór svo fram á opnum fundum með kröfuhöfum 3. desember 2010, 10. mars 2011 og 13. apríl 2011 þar sem leitað var eftir viðbrögðum frá kröfuhöfum varðandi framtíðarskipan bankans. Kröfuhafar sem hafa komið skoðunum sínum á framfæri við skilanefnd og slitastjórn Kaupþings telja ákjósanlegast að leita nauðasamninga eins fljótt og auðið er, að því er segir í fréttinni.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira