Neyðarkall frá ferðaþjónustunni í Skaftárhreppi 11. júlí 2011 07:49
Ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi hafa sent Ögmundi Jónssyni innanríkisráðherra bréf þar sem þeir lýsa yfir miklum áhyggjum af rofi á þjóðvegi 1 við Múlakvísl. Bréfið ber yfirskriftina Neyðarkall frá ferðaþjónustuaðilum í Skaftárhreppi. Í bréfinu segir: „Við höfum miklar áhyggjur af lokun þjóðvegar nr.1 við Múlakvísl. Þetta rof á þjóðveginum, hringvegi um Ísland bitnar á ferðaþjónustu á öllu landinu með ómældum óþægindum fyrir ferðamenn. Á þessum tíma árs er gistirými nær fullbókað á landinu öllu og verður því neyðarástand þegar eðlilegt flæði umferðar um hringveginn rofnar. Einnig höfum við áhyggjur af neyðarflutningum af svæðinu ef til frekari hamfara skildi koma þar sem flóttaleiðir eru illfærar eins og staðan er í dag. Við förum þess á leit við íslensk yfirvöld að þau beiti sér fyrir því að vinna hefjist án tafar við þær framkvæmdir sem nauðsynlegar eru til þess að koma umferð um svæðið í lag. Skýlaus krafa okkar er um það að: Unnið verði allan sólarhringinn að bráðbirgðabrú og að jafnframt verði strax komið með nothæfar lausnir sem nýtast smábílum og neyðarflutningum, sem ekki er hægt að beina inn á fjallvegi. Vinna hefjist strax við að bæta vegslóða á Fjallabaksleið Nyrðri fyrir stærri bíla, bættar verði aðstæður til að mætast á veginum og að umferð um svæðið verði stýrt til að hámarka flutningsgetu hans og tryggja öryggi vegfarenda. Jafnframt óskum við eftir því að þegar í stað verði komin á bráðabirgðalausn og komum með eftirfarandi tillögur: 1. Bílar verði ferjaðir yfir Múlakvísl þangað til að bráðabirgðabrú verður opnuð. Fengin verði tæki sem henta til verksins þegar í stað. Svona ferjulausn yrði að vera opin allan sólarhringinn. 2. Fjallabaksleið Nyrðri verði haldið við allan sólarhringinn með heflum sem yrðu staðsettir á svæðinu. Vinna þarf að ræsisgerð og styrkingu eins og kostur er því vegurinn kemur ekki til með að þola þá umferð sem um hann þarf að fara að óbreyttu. 3. Ræsishólkar lagðir í farveg Múlakvíslar til bráðabirgða, ef það mætti verða til að flýta fyrir akfærum vegi.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira