Atvinnuleysi meira en í tölum Vinnumálastofnunar Hafsteinn Hauksson skrifar 20. júlí 2011 13:00 Mynd/Pjetur
Langtímaatvinnuleysi hefur tekið stökk á milli ára, þrátt fyrir fullyrðingar um að efnahagsbatinn sé hafinn í landinu. 15.800 manns voru atvinnulausir á öðrum fjórðungi ársins. Hagstofan birtir í dag tölur um atvinnuleysi á öðrum fjórðungi ársins, en að meðaltali var 8,5 prósent vinnuaflsins án atvinnu á tímabilinu. Það er mun hærra hlutfall en Vinnumálastofnun hefur gefið út, en stofnunin hefur mælt á bilinu 6,7 til 8,1 prósent atvinnuleysi á sama tímabili. Ástæðan fyrir þessu misræmi er sú að Hagstofan framkvæmir könnun á atvinnuleysi meðal alls almennings, á meðan Vinnumálastofnun byggir eingöngu á því fólki sem er á atvinnuleysisskrá, en mæliaðferð Hagstofunnar er almennt talin áreiðanlegri. Atvinnuleysi er langmest meðal ungs fólks, en á aldrinum 16 til 24 ára er tæplega einn af hverjum fimm atvinnulaus. Alls bendir könnun Hagstofunnar til að 15.800 manns séu atvinnulausir, en þeim fækkar um 400 frá árinu áður. Athygli vekur að langtímaatvinnulausum fjölgar hins vegar mikið á milli ára, en allir þeir sem hafa verið án atvinnu í ár eða lengur falla undir þá skilgreiningu. Á öðrum ársfjórðungi voru þeir 3.900 talsins, en það er stökk frá sama tíma á síðasta ári, þegar þeir töldust 2.700.
Tengdar fréttir Atvinnuleysið 8,5% á öðrum ársfjórðungi Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 15.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,5% hjá körlum og 7,4% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2011 fækkaði atvinnulausum um 400 manns. 20. júlí 2011 09:02 Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira
Atvinnuleysið 8,5% á öðrum ársfjórðungi Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 15.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,5% hjá körlum og 7,4% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2011 fækkaði atvinnulausum um 400 manns. 20. júlí 2011 09:02