Atvinnuleysið 8,5% á öðrum ársfjórðungi 20. júlí 2011 09:02
Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 15.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,5% hjá körlum og 7,4% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2011 fækkaði atvinnulausum um 400 manns. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að þegar litið sé til aldurs var atvinnuleysi mest meðal fólks á aldrinum 16–24 ára eða 18,6%. Hjá hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi 6,4% og 5,4% hjá 55–74 ára. Á öðrum ársfjórðungi 2011 var atvinnuleysi 10,2% á höfuðborgarsvæðinu en 5,3% utan þess. Af þeim sem voru atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2011 voru að jafnaði 2.800 manns búnir að vera atvinnulausir í 1–2 mánuði eða 18% atvinnulausra. Til samanburðar höfðu 2.900 manns verið atvinnulausir í 1–2 mánuði á öðrum ársfjórðungi 2010 eða 18,2% atvinnulausra. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á öðrum ársfjórðungi 2011 höfðu um 3.900 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 24,7% atvinnulausra. Árið 2010 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 2.700 manns eða 16,9% atvinnulausra. Á öðrum ársfjórðungi 2011 voru 1,5% af þeim sem voru á vinnumarkaði atvinnulausir í 1–2 mánuði en 1,6% árið 2010. Langtímaatvinnulausir voru 2,1% vinnuaflsins á öðrum ársfjórðungi 2011 samanborið við 1,5% árið 2010. Fjöldi starfandi á öðrum ársfjórðungi 2011 var 170.000 manns og fjölgar um 500 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 185.800 manns sem jafngildir 83% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 85,6% en kvenna 80,3%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu. Á öðrum ársfjórðungi 2010 voru alls 185.700 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá 83,3%. Atvinnuþátttaka karla var þá 86,9% og kvenna 79,5%.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira