Verðlækkanir á korni framundan 9. ágúst 2011 11:05
Töluverðar verðlækkanir á korni eru framundan eða um 10%. Þetta skýrist m.a. af verulegri aukningu á kornuppskeru Rússlands í ár. Fjallað er um málið á vefsíðu Landssambands kúabænda. Þar segir að yfirvöld í Rússlandi gera ráð fyrir að kornuppskeran þar í landi í ár verði um 90 milljónir tonna. Það er 50% aukning frá fyrra ári. Í Síberíu hafa þurrkar geisað það sem af er sumri, þannig að búist er við að uppskeran þar verði svipuð og í fyrra. Í öðrum hlutum landsins hafa aðstæður verið mun hagstæðari en á liðnu ári, sem reyndar var með eindæmum lélegt, þannig að þar er búist við góðri uppskeru. Kornbirgðir landsins eru um 16 milljónir tonna sem seldar verða með afslætti á næstu vikum til að rýma fyrir nýrri uppskeru. Að sögn er afslátturinn um 20-30 dollarar á tonnið, eða 2.300-3.500 kr. Heimsmarkaðsverð t.d. á hveiti er um 280-300 dollarar pr. tonn um þessar mundir og fer lækkandi. Gert er ráð fyrir að kornnotkun Rússa næsta árið verði um 70 milljónir tonna, þannig að kornútflutningur þeirra verður talsverður. Af 90 milljón tonna uppskeru, eru um 60 milljónir tonna af hveiti.
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Fleiri fréttir ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira