Vandinn í Evrópu bráðari en í Bandaríkjunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. ágúst 2011 12:10 Ólafur Ísleifsson segir að vandinn sé bráðari í Evrópu en í Bandaríkjunum. Mynd/ GVA.
Matsfyrirtækið Standard og Poors lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna úr efsta þrepi í næstefsta seint í gærkvöld. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur segir að afleiðingarnar verði fyrst og fremst pólitískar. Skuldavandinn í Evrópu sé mun bráðari en skuldavandinn í Bandaríkjunum. Pólitíkusar eru þegar farnir að takast á um málið vestanhafs. Jim DeMint, öldungadeildarþingmaður úr röðum repúblikana, krefst þess að Obama forseti víki Timothy Geithner fjármálaráðherra úr embætti og setji annan í hans stað sem geti komið lagi á fjármálin og stuðli að fjölgun starfa. Harry Reid, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, segir hins vegar að lánshæfismatseinkunnin sýni þörfina á því að ná tökum á ríkisfjármálunum með samblandi af niðurskurði á ríkisútgjöldum og tekjuaukningu. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur segir að öððrum þræði sé þetta pólitískt mál í Bandaríkjunum og muni ekki snerta Íslendinga beint. Það snúist að miklu leyti um svokallað skuldaþak sem Íslendingar hafi ekki. Málið sé því að mörgu leyti óskiljanlegt fyrir Íslendinga. Að auki blandist inn þetta átök um það hvort takast eigi við ríkisfjármál með skattahækkunum eða niðurskurði. Ólafur segir að meira aðkallandi sé að takast á við skuldavandann í Evrópu og þau vandræði geti snert Íslendinga beint. Til dæmis muni breytingar á gengi evrunnar hafa áhrif á Íslendinga. Þá geti aðgangur Íslendinga að lánsfé minnkað ef aðgangur að lánsfé í Evrópu verður takmarkaðra.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Sjá meira