Skuldamál Alterra eru Jarðvarma óviðkomandi 4. ágúst 2011 08:26
Jarðvarmi, félag í eigu lífeyrissjóðanna, hefur sent frá sér athugasemd vegna frétta um málefni HS Orku. Þar segir að skuldamál Alterra, áður Magma Energy, séu Jarðvarma óviðkomandi. Athugasemdin hljóðar svo: „Í fréttum af endurgreiðslu Alterra (áður Magma Energy) á láni félagsins, hefur aðkoma Jarðvarma, félags í eigu lífeyrissjóða sem nýlega keypti fjórðungshlut í HS Orku, verið til umræðu. Af því tilefni vill stjórn Jarðvarma taka eftirfarandi fram: Við kaup Jarðvarma á hlutum í HS Orku í maí s.l. voru Alterra greiddir 8,1 milljarður íslenskra króna fyrir hluti í eigu þess. Þar með eignaðist Jarðvarmi 25% af heildarhlutafé HS Orku. Alltaf hefur legið fyrir að þeir fjármunir færu ekki inn í HS Orku. Endurgreiðsla láns Alterra, sem um er rætt, hefur því að þessu leyti engin áhrif á þessa fjárfestingu eða rekstur HS Orku. Það er Jarðvarma óviðkomandi hvernig Alterra háttar endurgreiðslum á lánum sem félagið hefur tekið og er það væntanlega samkomulagsatriði milli lánveitanda og lántaka eins og almennt tíðkast. Vegna umræðna um aflandskrónur er rétt að ítreka það sem áður hefur komið fram að áður en ákvörðun var tekin um kaup Jarðvarma á hlutum í HS Orku yfirfóru lífeyrissjóðirnir og ráðgjafar þeirra fjármögnun Alterra á kaupum á hlutum í HS Orku. Þar var gengið úr skugga um að Jarðvarmi nyti alfarið þeirra kjara sem Alterra naut á sínum tíma af viðskiptum með aflandskrónur. Fullyrðingar um að Alterra sé að hagnast á aflandskrónuviðskiptum í samningum við Jarðvarma eru því rangar. Samkomulag liggur fyrir um rétt Jarðvarma á að fjárfesta í nýju hlutafé sem gefið yrði út af HS Orku, en verði af þeirri fjárfestingu renna þeir fjármunir inn í HS Orku og gera félaginu kleift að mæta fyrirsjáanlegri fjárfestingarþörf og að sækja fram með nýjum verkefnum.“
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Sjá meira