Íslandsbanki yfirtekur eignir Fasteignar 12. ágúst 2011 09:26
Íslandsbanki mun yfirtaka eignir Fasteignar sem ekki tilheyra sveitarfélögunum sem standa að félaginu. Leigueign Arion banka hf. í Borgarnesi kann þó að verða undanskilin við yfirtökuna. Íslandsbanki mun jafnframt yfirtaka hluta af rekstrarláni félagsins, sem nemur samtals um einum milljarði kr. í hlutfalli við virkan eignarhlut bankans í Fasteign eftir útgöngu Álftaness og Garðabæjar úr félaginu. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Eyjafrétta. Þar segir að hlutafé Fasteignar verður fært niður í núll en aukið að nýju af þeim aðilum sem áfram munu vera leigutakar félagsins og þá í hlutfalli við leigugreiðslur þeirra. Samhliða því framselja aðrir núverandi hluthafar, sem ekki verða áfram leigutakar félagsins, hluti sína til félagsins. Þetta er meðal hugmynda um framtíð Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. sem hefur verið í lausu lofti undanfarna mánuði. Voru þær ræddar í bæjarráði (Vestmannaeyja) þar sem lá fyrir hugmynd að rammasamkomulagi sem mögulega kann að nást á milli Fasteignar hf., lánardrottna félagsins, hluthafa og leigutaka. Meðal annarra atriða er að gengið verður frá breyttum eða nýjum lánasamningum við lánardrottna Fasteignar. Álag á lánum Glitnis til Fasteignar verður fast, 1,45% frá miðju árið 2011 og út árið 2014. Vextir af lánunum verða greiddir að fullu, en afborganir frá miðju ári 2011 og út árið 2014 lækka tímabundið um 50%. Stefnt er að því að endurgreiðslutími lánanna verði 25 til 27 ár og að mælt verði fyrir um sérstaka uppgreiðsluheimild án álags í samningunum. Íslandsbanki hefur að auki óskað eftir að evru-lánum verði breytt í lán í íslenskum krónum og að höfuðstóli lánanna verði breytt til samræmis við starfsreglur bankans. Fasteign mun gera samkomulag við bankana þess efnis að breytingar á lánasamningunum muni ekki hafa nein áhrif á réttarstöðu félagsins vegna gengislána. Nýir leigusamningar munu verða gerðir milli Fasteignar og leigutaka félagsins. Mun leigugjald samkvæmt samningunum framvegis taka mið af raunverulegum afborgunum Fasteignar af lánum félagsins og rekstrarkostnaði þess. Með breytingunum verður rekstur félagsins lágmarkaður þannig að megintilgangur þess verður að móttaka leigugreiðslur og ráðstafa þeim til niðurgreiðslu lána og vaxta auk eftirlits með viðhaldi og meðferð fasteigna félagsins, að því er segir í Eyjafréttum.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira