Hafnfirðingar: Tæp sextíu prósent vilja stærra álver 11. ágúst 2011 13:20
Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan eru sammála um mikilvægi þess að mikil sátt ríki um starfsemi fyrirtækisins í bæjarfélaginu. Þá sýnir skoðanakönnun að bæjarbúar telja jákvætt að hafa álver starfandi í Hafnarfirði. Í tilkynningu segir að Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan hafi undanfarna mánuði átt í viðræðum um stöðu fyrirtækisins í hafnfirsku samfélagi í nútíð og framtíð, en bæjarráð óskaði eftir viðræðunum á fundi í október sl. Báðir aðilar leggja áherslu á mikilvægi þess að víðtæk sátt ríki um stöðu fyrirtækisins í samfélaginu og framtíðaráform þess og hyggjast vinna saman að því að svo megi verða. Mjög góður andi hefur ríkt í viðræðum aðila og snemma í þeim var ákveðið að kanna vilja og viðhorf bæjarbúa til fjölmargra þátta sem snerta starfsemi fyrirtækisins. Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan réðu Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera umfangsmikla rannsókn á viðhorfum bæjarbúa til atvinnumála í víðum skilningi, auk viðhorfa til álversins í Straumsvík og framtíðar þess. Félagsvísindastofnun gerði í þessu skyni umfangsmikla símakönnun, auk rýnihóparannsóknar. Í þessum rannsóknum kom m.a. fram, að þrír af hverjum fjórum íbúum í Hafnarfirði telja jákvætt fyrir bæjarfélagið að hafa álverið starfandi þar og innan við einn af hverjum tíu telur það neikvætt. Sama gildir um viðhorf til 20% framleiðsluaukningar álversins sem nú er unnið að. Helstu ávinningar af veru fyrirtækisins eru taldir þeir að það skapar störf og tekjur fyrir bæjarsjóð. Þegar spurt er um nokkra ólíka kosti varðandi framtíð álversins segist mjög lítill hluti svarenda vilja draga úr framleiðslu eða hætta henni, rúm 43% vilja láta staðar numið eftir framleiðsluaukninguna og rúm 47% vilja auka framleiðslu enn frekar. Mögulegt hlutfall þeirra sem telja ásættanlegt að auka framleiðslugetuna fer í um 66% að því gefnu að uppfyllt verði ströng skilyrði, ekki síst í umhverfismálum. Þegar spurt er beint hvernig fólk myndi greiða atkvæði ef kosið yrði um stækkun álversins í dag segjast 59,5% myndu styðja stækkun, þar af sumir að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að áfram ríki mikil sátt um starfsemi fyrirtækisins í hafnfirsku samfélagi og lýsa ríkum vilja til að stuðla sameiginlega að því að svo megi verða. Í ljósi niðurstaðna könnunarinnar er það mat aðila, að ekki sé tímabært að kjósa aftur um mögulega stækkun álversins. Rio Tinto Alcan telur að unnt sé að hanna stækkunarkost sem tæki betur tillit til sjónarmiða bæjarbúa eins og þau birtast í könnuninni og nyti þar með víðtækari stuðnings. Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan eru sammála um að ræða áfram um möguleika til eðlilegrar þróunar fyrirtækisins í bænum, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira