Forstjóri FME vill rýmka sektarheimildir JMG skrifar 29. ágúst 2011 18:38 Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Mynd/ Pjetur.
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir þörf á að rýmka sektarheimildir eftirlitsins til að auka varnaráhrif stjórnvaldsaðgerða. Hámarkssekt nú er fimmtíu milljónir króna samanborið við mörg hundruð milljóna sektarheimildir Samkeppniseftirlitsins. Í fréttum okkar í gær sögðum við frá því að fyrrverandi stjórnarmenn í MP banka lánuðu sjálfum sér og tengdum aðilum fimmfalt meira en lög heimiluðu árið 2009. Fjármálaeftirlitið hefur sektað eignarhaldsfélag gamla MP banka um fimmtán milljónir fyrir þessar lánveitingar. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir eftirlitið hafa heimild til stjórnvaldssekta vegna stórra áhættuskuldbindinga frá 50 þúsund krónum og upp í 50 milljónir. En hefur fimmtán milljóna króna sekt næg varnaðaráhrif við svona broti? „Það segir sig sjálft að það er frekar lág upphæð fyrir stór fyrirtæki, best væri auðvitað að þurfa aldrei að beita þeim, en ég get líka nefnt að Evrópusambandið er að skoða þessa hluti eins og er og væntanlega er von á tilskipunum um strangari viðurlög,“ segir Gunnar Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Til samanburðar þá hefur Samkeppniseftirlitið heimild til að sekta um allt að tíu prósent af rekstrartekjum. Gunnar segir því nauðsynlegt að taka þetta mál upp og skoða. „Ég held að það sé tilefni til að skoða þessi viðurlög, þennan ramma, í ljósi stærðar og varnaráhrifa sem þessi viðurlög eiga að hafa því þau eru takmörkuð ef að ramminn leyfir ekki meira en fimmtíu milljónir,“ segir Gunnar.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira