Vilja að ráðherra kanni hvort jafnræðis hafi verið gætt 29. ágúst 2011 12:20 Andrea Jónsdóttir.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa óskað eftir því að efnahags- og viðskiptaráðuneytið kanni hvort jafnræðis hafi verið gætt í framkvæmd hundrað og tíu prósent lánaleiðréttingar heimila. Þetta kemur fram í erindi sem hagsmunasamtök heimilann hafa sent efnahags og viðskiptaráðherra, fjármálaeftirlitinu, forsætisráðherra og fjármálaráðherra fyrir helgi. Andrea Jóhanna Ólafsdóttir er formaður samtakanna: „Við erum að fara fram á það við efnhags og viðskiptaráðherra að það verði könnuð 110 prósent lánaleiðréttingin, þá erum við að tala um að láta kanna það hvort að jafnræðis hafi verið gætt og hvort að aðferðafræði hjá fjármálastofnunum hafi verið samræmd.“ Hún segir samtökin hafa fengið margar fyrirspurnir frá félagsmönnum bendi til þess að fólki hafi verið mismunaði, sumum hverjum gróflega eftir því hjá hvaða lánveitenda niðurfæranleg veðlán voru tekin. „Það kann að vera að einhverjar skýringar séu að þá svarar ráðherra því væntanlega, til dæmis að bílar eða annað lausafé komi til frádráttar, svo virðist að það sé ekki notað sama mat á fasteignunum. Þá er ekki samræmt hvort það er fasteignamat hjá fasteignamati ríkisins eða hjá fasteignasala sem lánastofnun sendir á staðinn. Við höfum einnig grun um að ástæða þess að fleiri hafi ekki farið inn í þess leið hjá Íbúðalánasjóði sé að þar hafi verið notað of hátt mat,“ segir Andrea ennfremur. Því sé þörf á að hlutlæg stjórnvaldsathugun fari fram á framkvæmd einstakra lánveitenda leiki grunur á því að lánveitendur hafi með markvissum og skipulegum hætti hagnast á framkvæmd hennar á kostnað lántakenda. Erindið var sent til ráðherra fyrir helgi og vonast Andrea því eftir svörum á næstu dögum.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira