Vafi á rekstrarhæfi Olís 28. ágúst 2011 12:55 Olís. Myndin er úr safni.
Olís kann að eiga í verulegum rekstrarerfiðleikum en Viðskiptablaðið greindi frá því í blaðinu sínu á fimmtudaginn að vafi kunni að leika á rekstrarhæfi félagsins. Helstu ástæður þess eru tæplega tveggja milljarða króna lán félagsins sem féll á gjalddaga í maí 2011. Olís á 1,4 milljarða króna kröfu á móðurfélag sitt sem er með neikvætt eigið fé og að félagið gjaldfærir ekki 560 milljóna króna stjórnvaldssekt vegna olíusamráðsins í reikningum sínum að því er greinir frá í Viðskiptablaðinu. Þetta kemur fram í ársreikningi Olís sem skilað var inn til ársreikningaskrár 16. ágúst síðastliðinn. Eignarhaldsfélagið FAD 1830, sem á 100% hlut í Olís, hefur ekki skilað inn ársreikningi nema fyrir árin 2003, 2006 og 2007. Eigendur FAD 1830 eru Einar Benediktsson og Gísli Baldur Garðarsson. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis greindi frá því lok júní að Landsbankinn myndi hugsanlega taka Olís yfir vegna erfiðrar skuldastöðu núverandi eigenda félagsins. Þá kom einnig fram að bankinn færi sér hægt og segðist vera að vinna með eigendunum. Í Viðskiptablaðinu kemur fram að Olís-samstæðan, sem tapaði 65,9 milljónum króna í fyrra, mat eignir sínar á 16,5 milljarða króna og skuldir á 15,1 milljarð króna. Samkvæmt ársreikningnum er eigið fé hennar því um 1,4 milljarðar króna. Í ársreikningnum kemur þó fram að í árslok 2008 og 2009 hafi verið framkvæmt „sérstakt endurmat“ á fastafjármunum Olís sem leiddi til hækkunar á bókfærðu virði þeirra um samtals 4,2 milljarða króna. Hægt er að nálgast vefútgáfu fréttarinnar á Viðskiptablaðinu hér.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira