Sagður hafa beitt bókhaldsbrellum til þess að framlengja líf MP Banka 25. ágúst 2011 20:19 Styrmir Þór Bragason.
Þáverandi forstjóri MP banka, Styrmir Þór Bragason, seldi veðsett hlutabréf í Landsbankanum fyrir hálfan milljarð króna og bókfærði söluandvirðið sem hagnað til að koma í veg fyrir að bankinn færi á hausinn. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Þar kom fram að ekki króna hefði verið notuð til að greiða inn á lánið sem var veitt gegn veðunum og Byr sparisjóður var svikinn um ríflega þrjú hundruð milljónir króna sem sjóðnum bar, samkvæmt lánasamningi. MP banki var í lok mars dæmdur til að greiða Byr sparisjóði ríflega fjögur hundruð milljónir króna vegna tveggja og hálfs milljarðs króna kúluláns. Bankinn hélt eftir öllu söluandvirðinu og þar af rúmum þrjú hundruð milljónum króna sem Byr-sparisjóði bar samkvæmt aðildarsamningnum og staðfest er fyrir dómi. Skömmu eftir þennan gjörning, rann tæpur milljarður króna úr sjóðum Byrs til MP banka í Exeter fléttunni svokölluðu, en þar var Styrmir Þór sýknaður af aðild. Því máli var áfrýjað og verður tekið fyrir í Hæstarétti á næstunni. Fréttina má nálgast í heild sinni hér. Árétting frá MP Banka: MP banki hf. harmar framsetningu fréttastofu RÚV í umfjöllun um dómsmál milli Byrs og EA fjárfestingarfélags hf. – sem hét áður MP banki - í kvöldfréttartíma RÚV 25. ágúst 2011. Af því tilefni vill MP banki ítreka að dómsmál það sem fjallað var um í kvöldfréttartíma RÚV 25. ágúst snertir ekki með nokkrum hætti þann MP banka hf. sem nú starfar, eða eigendur hans. Ágreiningi Byrs og EA fjárfestingarfélags hf. hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar og þar verður málið útkljáð.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira