Þeim fjölgar sem eru í alvarlegum vanskilum 30. ágúst 2011 12:58
Einstaklingum í alvarlegum vanskilum hefur fjölgað um tæp tíu prósent frá áramótum. Á þriðja tug þúsunda var í alvarlegum vanskilum um síðustu mánaðarmót en ungt fólk er einna verst statt. Tæplega tuttugu og sex þúsund einstaklingar voru í alvarlegum vanskilum um síðustu mánaðarmót og hefur þeim fjölgað úr rúmlega tuttugu og þrjúþúsundum frá áramótum. Að vera í alvarlegum vanskilum merkir það að kröfur hafa verið í vanskilum í 90 til 180 daga, og oft hafa málin farið fyrir dóm. Hákon Stefánsson er framkvæmdastjóri Creditinfo. Hann segir að þeir einstaklingar og fyrirtæki sem lenda í þessu geti lent í erfiðleikum við að leysa sín mál. Hlutfall einstaklinga í alvarlegum vanskilum er hæst á Reykjanesi, tæplega 16%, en lægst mælist hlutfallið á Norðurlandi Vestra, 6%. Rúmlega fjórtán þúsund manns eru í þessum sporum á höfuðborgarsvæðinu eða 9,4%. Ástandið hjá unga fólkinu í landinu er einna verst, en rúmlega fimm þúsund einstaklingar á aldrinum 18 til 29 ára eru í alvarlegum vanskilum og tæplega sjöþúsund á aldrinum þrjátíu til þrjátíu og níu ára. Stefán segist halda að aukning á vanskilum yngsta aldurshópsins sé um 30 prósent frá árinu 2009. „Svo virðist sem afleiðingar hrunsins, ef menn nota það sem skurðpunkt, séu að koma seinna fram, sem kannski tengist svo aftur þeim úrræðum sem stjórnvöld fóru í og þeim frystingum sem bankarnir tóku upp á, að frysta lán, og annað þess háttar. Það er að segja, þegar þeim sleppir þá er eins og að fólk sé einfaldlega ekki í þeirri stöðu að ráða við þær skuldbindingar sem það var að taka á sig fyrir hrun."
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira