Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði tvöfaldast frá upphafi árs 5. september 2011 13:19 Seðlabanki Íslands.
Verðbólguálag til lengri tíma á skuldabréfamarkaði er nú hærra en það hefur verið frá ársbyrjun 2009, og hefur álagið tvöfaldast frá upphafi árs samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Þar segir að verðbólguálag til 7 ára sé nú 5,2%, en í janúarbyrjun var 7 ára álagið jafnt verðbólgumarkmiði Seðlabankans, eða 2,5%. Svipaða sögu má segja af 5 ára álaginu, sem hefur hækkað úr 2,1% í 4,7% á sama tímabili. Hækkun álagsins hefur fyrst og fremst orðið fyrir tilstilli hækkunar á kröfu lengri óverðtryggðra ríkisbréfa. Þannig hefur til að mynda krafa ríkisbréfaflokksins RIKB25 hækkað úr 6,03% í 8,18% það sem af er ári. Krafa lengri flokka íbúðabréfa, sem myndar verðtryggða markflokkaferilinn á íslenska skuldabréfamarkaðinum, hefur hins vegar lítið breyst á sama tíma. Má þar nefna að raunkrafa HFF34-bréfa er nú 3,15% en var 3,27% í upphafi árs. Verðbólguálag á markaði er ein þeirra vísbendinga um verðbólguvæntingar sem peningastefnunefnd Seðlabankans horfir til við vaxtaákvarðanir sínar að því er greinir frá í morgunkorninu. Við síðustu vaxtaákvörðun var álagið til 5 ára 4,3%, og hefur verðbólguálag á þennan kvarða því hækkað um 0,2% frá vaxtahækkun bankans um miðjan síðasta mánuð. „Miðað við þann kvarða er því ekki hægt að segja að vaxtahækkunin, og þau skilaboð að fleiri slíkra kynni að vera að vænta á komandi mánuðum, hafi gert fjárfesta bjartsýnni á verðbólguhorfur til lengri tíma litið. Verður fróðlegt að sjá hvernig nefndarmenn túlka þá þróun við næstu vaxtaákvörðun að tveimur vikum liðnum,“ segir í morgunkorninu.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira