Framtakssjóður hagnaðist um tvo og hálfan milljarð 5. september 2011 11:11 Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Mynd/GVA
Framtakssjóður Íslands skilaði 2.540 milljónum króna í hagnað á fyrstu 6 mánuðum ársins 2011. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að hagnaðurinn skýrist af hækkun markaðsverðs eignarhlutar sjóðsins í Icelandair Group. Eigið fé sjóðsins við lok tímabilsins nam 20,9 milljörðum króna. „Í ársbyrjun 2011 var eignarhlutur Framtakssjóðs í Icelandair Group eina hlutabréfaeign félagsins. Í janúar 2011 bættust eignarhlutir í Icelandic Group, Skýrr, Vodafone, Húsasmiðjunni og Plastprenti í eignasafn Framtakssjóðsins," segir í tilkynningunni og þess getið að eignarhlutir í óskráðum félögum í eigu Framtakssjóðsins séu færðir á kostnaðarverði í bókum sjóðsins. „Góð afkoma Framtakssjóðsins á fyrstu 6 mánuðum ársins skýrist af þeim árangri sem náðist í rekstri Icelandair á tímabilinu," segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs. Hann segir að starfsemi sjóðsins hafi mótast að verulegu leyti af áframhaldandi uppbyggingu eignasafnsins en 5 fyrirtæki bættust í eignasafn sjóðsins í janúar 2011. „Í byrjun júlí var svo tilkynnt um kaup sjóðsins á 40% eignarhlut í Promens. Fyrstu söluferlin eru komin af stað þar sem eignir sjóðsins og dótturfélaga eru boðnar áhugasömum fjárfestum til kaups. Síðastliðinn föstudag var lokið við sölu á eignum Icelandic Group í Frakklandi og Þýskalandi en reksturinn þar hefur verið erfiður og eignirnar mjög skuldsettar. Þá stendur yfir söluferli á starfsemi Icelandic í Bandaríkjunum og Kína og er mikill áhugi á þeim eignum. Verkefnið framundan er fyrst og fremst að halda áfram að þróa eignasafnið og vinna náið með stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja í eigu sjóðsins að því að ná hámarksárangri í rekstri félaganna."
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira