Eignir duga fyrir öllum forgangskröfum - líka Icesave Hafsteinn Hauksson skrifar 1. september 2011 19:00
Eignir þrotabús gamla Landsbankans duga fyrir öllum forgangskröfum á bankann og gott betur samkvæmt nýjasta endurmati á eignasafni þess. Formaður skilanefndar bankans segir þó að það sé stjórnmálamanna að segja til um lyktir Icesave málsins. Tilkynnt var um endurmat á eignasafni þrotabús gamla Landsbankans á fundi á Nordica í dag. Þar greindi Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar bankans, frá því að virði eigna þess hefði aukist um rúma 45 milljarða á öðrum fjórðungi ársins, en þriðjungur upphæðarinnar er vegna gengisbreytinga. Endurheimtur upp í kröfur á bankann eru því nú áætlaðar um 1.332 milljarðar króna miðað við gengi krónunnar þegar kröfum var lýst, en forgangskröfur á bankann, sem eru einkum komnar til vegna Icesave innlánanna og heildsöluinnlána bankans erlendis, nema 1.319 milljörðum. Það merkir að endurheimturnar duga fyrir öllum forgangskröfum, og 13 milljarðar til viðbótar hrökkva til upp í almennar kröfur. Lárentsínus segir að þetta mat eignanna sé varfærið, og ef allt fari á besta veg gæti búið jafnvel átt frekari virðisaukningu inni. „Þetta horfir þannig við okkur að þessar icesave kröfur, þær kröfur sem komast í búið, verða borgaðar að fullu," segir Lárentsínus sem segir það þó stjórnmálamanna að svara frekar spurningum um Icesave.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira