Róbert Wessman segir forstjóra Bosnalijek hafa beðið um mútugreiðslu Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. september 2011 18:58 Róbert Wessman, starfandi stjórnarformaður Alvogen Group.
Stjórnendur bosníska lyfjafyrirtækisins Bosnalijek segja að að Alvogen, lyfjafyrirtæki Róberts Wessman, hafi ætlað að beita ólöglegum aðferðum við að fjárfesta í félaginu. Róbert vísar þessu á bug og segir að forstjórinn hafi óskað eftir mútugreiðslum til að liðka fyrir kaupunum en hann segir spillinguna allsráðandi í Bosníu- og Hersegóvínu. Bandariska lyfjafyrirtækið Alvogen Group hefur undir forystu Róberts Wessman, starfandi stjórnarformanns, sett sér markmið um að komast í hóp tíu stærstu samheitalyfjafyrirtækja heims innan fimm ára. Róbert hefur ferðast víða til að skoða áhugaverð tækifæri fyrir Alvogen en eitt af þeim fyrirtækjum sem Alvogen hafði í sigtinu var bosníska lyfjafyrirtækið Bosnalijek en ríkissjóður Bosníu- og Hersegóvínu og sjóður á vegum Alþjóðabankans eiga saman 28 prósenta hlut í félaginu sem til stóð að selja á síðasta ári. Í tilkynningu á vefsíðu Bosnalijek er máluð dökk mynd af samskiptum stjórnenda þess við fulltrúa Alvogen. Þar segir að fulltrúar Alvogen hafi ekki mætt þegar hlutabréf ríkisins í Bosnalijek voru boðin til sölu, þrátt fyrir að hafa gefið loforð í þá veru. Þá hafi stjórnendur Bosnalijek áttað sig á því að Alvogen hafi ætlað að kaupa hlutabréfin í fyrirtækinu með lántökum í Bosníu og hafi síðan ætlað að láta Bosnalijek greiða þessi sömu lán til baka. Helstu bankar í Bosníu- og Hersegovínu hafi lýst sig andsnúna þessum áformum þar sem slík aðferð við kaupin hafi verið á skjön við gildandi lög og reglur í landinu. Eftir þetta hafi orðið ljóst að Alvogen hafi ekki verið hið sterka alþjóðlega fyrirtæki sem það þóttist vera og heldur hafi það aðeins viljað eignast ráðandi hlut í félaginu til að geta stjórnað því án nokkurrar eigin áhættu eða skuldbindinga. Alvogen hafi því enga þýðingu fyrir Bosnalijek lengur og í raun ógni það og áform þess tilvist bosníska fyrirtækisins, að því er fram kemur á vefsíðu þess. Róbert Wessman sagði í samtali við fréttastofu í dag að forstjóri Bosnalijek hefði komið í veg fyrir að Alvogen framkvæmdi áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu með það fyrir augum að fjárfesta í því. Alvogen hafi ætlað að fjárfesta í fyrirtækinu með eigin fé og því standist þessar yfirlýsingar stjórnenda Bosnalijek ekki. Þá sagði hann spillinguna í Bosníu meiri en hann hefði nokkru sinni áður kynnst. Meðal annars hefði forstjóri Bosnalijek óskað eftir persónulegri greiðslu frá Alvogen til að liðka fyrir kaupunum. Stjórnendum Alvogens hafi orðið ljóst að stjórnendur Bosnalijek hafi tekið peninga út úr félaginu með hinum ýmsu aðferðum, t.d með því að gjaldfæra kostnað, og því hafi Alvogen ekki séð hag sinn í því að fjárfesta í því. Nokkuð hefur verið fjallað um samskipti stjórnenda Alvogens við fulltrúa bosníska fyrirtækisins í bosnískum fjölmiðlum, en Róbert segist sjálfur hafa mætt í þónökkur viðtöl í sjónvarpi í Bosníu- og Hersegóvínu, m.a til að andmæla staðhæfingum stjórnenda Bosnalijek. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira