Veltan eykst hjá Skýrr 15. september 2011 10:48 Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.
Velta Skýrr-samstæðunnar var liðlega 12,3 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2011. Á sama tíma í fyrra nam veltan 11,3 milljörðum og er því um tekjuvöxt upp á tíu prósent að ræða á milli ára. Í tilkynningu frá félaginu segir að áætlanir fyrir árið 2011 geri ráð fyrir veltu upp á 24 milljarða króna og að EBITDA framlegð verði um 1,4 milljarðar króna. Eigið fé í lok júní 2011 nam 3,5 milljörðum króna. „Við erum talsvert hreykin af þeim rekstrarárangri sem liggur núna fyrir. EBITDA framlegð af reglubundnum rekstri var 511 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2011, samanborið við 468 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Við erum því að auka EBITDA um 9,2% milli ára," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. Gestur segir að tölurnar enduspegli þá staðreynd að Skýrr sé í dag eitt öflugasta fyrirtæki Norðurlanda á sviði upplýsingatækni, með um 1.100 starfsmenn og viðamikinn rekstur í fjórum löndum. „Skýrr er þannig móðurfélag þriggja rekstrarfélaga; HugarAx á Íslandi, Kerfi AB í Svíþjóð og Hands AS í Noregi, en til norska félagsins heyrir einnig Sia Aston Baltic í Lettlandi," bætir Gestur við. Stjórn Skýrr skipa þau Anna Rún Ingvarsdóttir, Einar Páll Tamimi, Gísli Hjálmtýsson, Þorsteinn G. Gunnarsson (formaður) og Þór Hauksson. Varamenn eru Erna Eiríksdóttir og Finnbogi Jónsson. Aðaleigandi Skýrr er Framtakssjóður Íslands, auk rúmlega 40 annarra hluthafa.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira