Seldu 600 kíló á þremur dögum 12. september 2011 15:25 Myndin tengist frétt ekki beint Mynd úr safni
Fyrsta sending af íslenska neftóbakinu Lundi sem kom nýlega á markað hér á landi seldist upp á þremur dögum en í henni voru um 600 kíló af tóbaki. Framkvæmdastjórinn segir að salan hafi gengið vonum framar. Ásgeir Johansen, framkvæmdastjóri Rolf Johansen & Company, sem flytur vöruna inn frá Danmörku segir að þegar fyrsta pöntunin var afgreidd hafi forsvarsmenn fyrirtækisins velt því fyrir sér hvort að þeir væru að panta alltof mikið. Miðað við útreikninga þeirra átti magnið að duga í fjóra mánuði. „Við pöntuðum 600 kíló og það kláraðist á þremur dögum," segir hann. Varan er framleidd sérstaklega fyrir fyrirtækið og fæst hún einungis hér á landi. Eftir að búið var að finna framleiðanda tók við yfir ár í þróa vöruna. Að lokum samþykkti ÁTVR neftóbakið en það þarf að uppfylla ýmis skilyrði svo sem kornastærð og fleira. Sala á neftóbaki rúmlega tvöfaldaðist á sjö ára bili frá 2003 til 2010, úr 11,7 tonnum upp í 25,5 tonn. Á Íslandi hefur verið bannað með lögum að flytja inn, framleiða og selja fínkornótt neftóbak og munntóbak frá því að ESB-tilskipun sem gerði aðildarríkjum ESB og EES-ríkjunum skylt að banna munntóbak var leidd í lög hér 1. febrúar 1997. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um tóbaksvarnir þar sem tekið er upp nýtt ákvæði þar sem segir að bannað verði að flytja inn, framleiða og selja allt bragð- og lytkarblandað reyklaust tóbak. Þetta þótti ekki nægilega skýrt í lögunum og er frumvarpið til að bregðast við tilraunum á innflutningi á bragðbættu munntóbaki.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira