Tekjuhallinn 155 milljarðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. september 2011 09:16
Tekjuhalli hins opinbera var 155 milljarðar króna á síðasta ári eða rúmlega 10% af landsframleiðslu, eftir því sem fram kemur í tölum Hagstofunnar. Þetta er svipaður halli og árið 2009. Þessi óhagstæða niðurstaða skýrist fyrst og fremst af miklum samdrætti í tekjum hins opinbera vegna 11% samdráttar í landsframleiðslu árin 2009-2010 á sama tíma og útgjöldin jukust verulega vegna mikillar skuldsetningar og aukins atvinnuleysis. Heildartekjur hins opinbera námu 637 milljörðum króna árið 2010 og jukust um 23 milljarða króna milli ára eða 3,7%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 41,5% árið 2010 samanborið við 41,0% árið 2009, 44,1% árið 2008 og 47,9% árið 2007. Útgjöld hins opinbera reyndust um 792 milljarðar króna 2010 og jukust einnig um 3,7% eða um 28,6 milljarða króna milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu hækkuðu þau úr 51,0% árið 2009 í 51,5% 2010.143 milljarðar runnu til heilbrigðismála Útgjöld til heilbrigðismála voru 142,6 milljarðar króna árið í fyrra, eða 9,3% af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera 114,6 milljarðar króna en hlutur heimila um 28 milljarðar eða 19,6%. Á mann námu heilbrigðisútgjöld hins opinbera 360 þúsund krónum og lækkuðu um 24 þúsund krónur frá 2009. Um 128,2 milljörðum króna var ráðstafað til fræðslumála í fyrra, eða 8,3% af landsframleiðslu. Þar af var fjármögnun hins opinbera 116,7 milljarðar króna og hlutur heimila 11,5 milljarðar króna, eða 9%. Fræðsluútgjöld hins opinbera náum um 367 þúsund krónum á mann og lækkuðu um rúmlega 13 þúsund krónur frá 2009. Til almannatrygginga og velferðarmála ráðstafaði hið opinbera 172 milljörðum króna 2010, eða 11,2% af landsframleiðslu en það svarar til 541 þúsund krónur á mann. Af heildarútgjöldum hins opinbera í fyrra runnu 15,3% til heilbrigðismála, 16,2% til fræðslumála og 21,7% til velferðarmála, eða 53,2% af útgjöldum þess, en það svarar til 27,4% af landsframleiðslu. Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var neikvæð um 741 milljarða króna í árslok 2010, eða sem svarar 48,2% af landsframleiðslu. Hún versnaði um 144 milljarð króna milli ára eða 8,3% af landsframleiðslu. Peningalegar eignir hins opinbera námu 1.181 milljarði króna í árslok í fyrra, sem er 76,8% af landsframleiðslu og heildarskuldir námu 1.921 milljarði króna, sem er 125% af landsframleiðslu.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira