Spá hækkun fasteignaverðs Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. september 2011 10:23 Greiningardeild Arion gerir ráð fyrir að fasteignaverð muni hækka. Mynd/ Villi.
Íbúðaverð mun hækka á næstu árum þrátt fyrir áframhaldandi slaka í hagkerfinu, segir greiningadeild Arionbanka. Í greinargerð um fasteignamarkaðinn segir að hægt hafi á brottflutningi frá Íslandi og eftirspurn eftir íbúðum muni aukast. Framboð næstu ára muni ekki halda í við eftirspurn þar sem nýbygging verður nær engin vegna þess hve byggingakostnaður er hár. Nýframkvæmdir munu aðeins hefjast þegar markaðsverð hefur hækkað í átt að byggingarkostnaði. Því megi búast við skorti á íbúðum þegar líða tekur á árið 2013. Greiningardeildin segir óhætt að fullyrða að skrýtin staða sé komin upp á fasteignamarkaði. Mikill fjöldi ókláraðra íbúða sé til staðar en nýbygging sé svo gott sem engin. Greiningardeild spáir verðhækkun á næstu árum en hækkunin verður ekki mikil sökum þess að kaupmáttur heimila verður áfram lítill og fjármálaleg skilyrði heimila enn erfið. Greiningadeildin segir að ókláraðar íbúðir sem byrjað var á fyrir hrun muni sjá íbúðakaupendum fyrir húsnæði næstu misseri. Nýbygging sé lítil sem engin um þessar mundir en hún muni einungis taka við sér þegar markaðsverð fasteigna hækki eða byggingarkostnaður lækkar. Eins og staðan er í dag sé byggingarkostnaður almennt um 26% yfir markaðsverði fasteigna. Fari nýbygging ekki að aukast á næstu misserum muni skortur á íbúðum gera vart við sig þegar líða fer á árið 2013. Rétt er að taka fram að þessi greining Arionbanka gengur þvert á spá sem unnin var fyrir eignastýringaþjónustu Íslandsbanka, þar sem gert er ráð fyrir 30-50% lækkun, auk þess sem Seðlabankinn gerir ráð fyrir frekari lækkun fasteignaverðs.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira