Samið um undirbúning að virkjun í Ófeigsfirði Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. september 2011 16:27 Gísli Hauksson er framkvæmdastjóri Gamma. Mynd/ Arnþór.
Forsvarsmenn orkufyrirtækisins VesturVerk ehf. hafa gert samstarfsamning við Vatnsfall, fagfjárfestasjóð á vegum fjármálafyrirtækisins GAMMA, um fjármögnun á áframhaldandi undirbúningsvinnu vegna allt að 40MW vatnsaflsvirkjunar í Ófeigsfirði á Vestfjörðum. Í tilkynningu frá Gamma segir að virkjunin yrði langöflugasta virkjun á Vestfjörðum. Áætlað hefur verið að hún kosti allt að 15 milljarða króna og að rúmlega 300 ársverk þurfi til að byggja hana. Virkjunin er ein af fimm vatnsaflsvirkjunum í nýtingarflokki samkvæmt drögum að þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu. Búið er að ná samstöðu um framkvæmdina meðal landeigenda og eigenda vatnsréttinda. Gunnar Gaukur Magnússon framkvæmdastjóri VesturVerks er ánægður með samninginn sem mun gera félaginu kleift að ráðast í frekari undirbúning, rannsóknir og hönnun virkjunarinnar. „Það er ekki spurning um að virkjun af þessari stærðargráðu myndi verða gríðarleg lyftistöng fyrir atvinnulíf hér á Vestfjörðum, ásamt því að opnast myndi á þann möguleika að tryggja orkuöryggi á svæðinu sem er mjög bágborið," segir Gunnar í yfirlýsingu. Gunnar leggur þó áherslu á að verkefnið sé enn á frumstigi og að framundan séu fjölmargir verkþættir sem ráðast þarf í áður en endanleg ákvörðun verður tekin um byggingu virkjunarinnar. Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri GAMMA, segir fjárfesta horfa í auknum mæli til fjárfestinga í raforkugeiranum. „Síðustu misseri höfum við skoðað ýmis tækifæri í endurnýjanlegri raforkuframleiðslu og tengdum iðnaði og höfum fundið mikinn áhuga hjá viðskiptamönnum okkar fyrir þátttöku í slíkum verkefnum m.a. í gegnum sérhæfða fagfjárfestasjóði eins og Vatnsfall. Hvalárverkefnið er áhugavert fyrir margar sakir; það fær ágæta einkunn í rammaáætluninni og okkur sýnist allur undirbúningur þess til fyrirmyndar," segir Gísli.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira