Þrýstingur eykst á Grikki Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. september 2011 12:28 George Papandreu forsætisráðherra þarf að skera enn meira niður og brúa fjárlagahallann.
Grikkir eru undir miklum þrýstingi til að skera niður og brúa fjárlagahallann á ríkissjóði en í húfi er 8 milljarða evra fjárhagsaðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. Um er að ræða jafnvirði 1.200 milljarða íslenskra króna. Þessir peningar eiga að standa straum af lánum gríska ríkisins sem fallin eru á gjalddaga og öðrum útgjöldum. Grikkir eru undir miklum þrýstingi að rétta af tveggja milljarða evra fjárlagagat til að uppfylla skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins fyrir fjárhagsaðstoð. Embættismenn frá bæði ESB og AGS eru nú í Aþenu til að fylgjast með því að Grikkir uppfylli skilyrði aðstoðarinnar en gríska ríkið er upp á náð og miskunn þeirra komið. Ríkisstjórn gríska ríkisins mun funda síðar í dag til að hraða niðurskurðatillögðum og aðgerðum til að sporna við útgjöldum, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Fyrirhugaðar aðgerðir grískra stjórnvalda valda borgurum landsins vaxandi áhyggjum en margir óttast að niðurskurðarhnífurinn lendi illa á grunnstoðum samfélagsins. Mikil mótmæli hafa verið í Grikklandi frá því að fyrir lá að skera þyrfti niður til að uppfylla skilyrði AGS og ESB. Vandi Grikkja veldur enn óróa á hlutabréfamörkuðum í Evrópu en helstu hlutabréfavísitölur álfunnar lækkuðu í viðskiptum snemma í morgun. Fjárfestar bíða spenntir eftir áformum grískra stjórnvalda sem búist er við að verði kynntar að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Þá horfa fjárfestar í Evrópu einnig til aðgerða bandaríska seðlabankans til að örva hagvöxt þar í landi en tveggja daga fundur bankans stendur nú yfir og hyggst bankinn tilkynna um aðgerðir að honum loknum.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira