50 ár á horninu á Skólavörðustíg 8. október 2011 14:00 Tösku og hanskabúðin er í huga margra einn af föstum punktum miðborgarinnar á horninu á Skólavörðustíg og Bergstaðastræti.
Ein af eldri búðum bæjarins, Tösku og hanskabúðin, fagnar 50 ára afmæli þessa dagana en öll fimmtíu árin hefur verslunin verið til húsa á horninu á Skólavörðustíg og Bergstaðastræti. Hún er því í huga margra einn af föstum punktum miðborgarinnar því þrátt fyrir að byggð hafi breyst í gegnum árin og verslun dreifst um höfuðborgarsvæðið, þá hefur verslunin ávallt haldið sínu. Hjónin Ingibjörg Jónsdóttir og Þorgrímur Brynjólfsson stofnuðu Tösku- og hanskabúðina 3. október árið 1961 en þegar þau tóku við húsnæðinu á horni Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis var þar mjólkurverslun. Tösku og hanskabúðin er stærsta sérvöruverslun landsins með töskur og hanska. Hún hefur alla tíð flutt inn gæðavörur í miklu úrvali og hafa því myndast sterk viðskiptasambönd út um alla Evrópu sem viðskiptavinir verslunarinnar njóta góðs af. Enda hefur stór hópur viðskiptavina á öllum aldri haldið tryggð við verslunina í gegnum árin og fagnað því að eiga sér fastan punkt í annars síbreytilegum miðbænum. Til að fagna þessum tímamótum er haldin afmælishátíð í versluninni þessa dagana og veittur 20% afsláttur af öllum vörum í versluninni. Hægt er að skoða úrvalið í versluninni á heimasíðu hennar, th.is.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira