OR selur eignir fyrir 588,7 milljónir króna Magnús Halldórsson skrifar 18. október 2011 10:22 Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur að undanförnu selt sjö eignaeiningar fyrirtækisins fyrir samtals 588,7 milljónir króna, samkvæmt formlegu svari OR við fyrirspurn fréttastofu. Tilboðsfrestur í einu eignina sem enn er í söluferli, Perluna, rennur út í dag. Ákveðið var að fara út í söluna á eignunum vegna aðhalds í rekstri. Af þeim sjö einingum sem seldar hafa verið var hæst verð greitt fyrir Hótel Hengil á Nesjavöllum, eða 210 milljónir króna. Að auki var skemma við Andakílsárvirkjun seld á 5,3 milljónir, Árnes starfsmannahús við Andakílsársvirkjun á 16,2 milljónir, Berskerskeyri og Berserkseyri ytri, Snæfellsnesi á 75 milljónir, almannavarnarskýlið í Mosfellsdal á 27,2 milljónir, minjasafn OR í Elliðaárdal var selt á 100 milljónir og Hvammur og Hvammsvík án jarðhita á 155 milljónir. OR hefur ekki viljað gefa upp hverjir voru kaupendur að þessum sjö eignum félagsins. Samkvæmt skráningum á fasteignaskrá ríkisins er þinglýstur eigandi skemmunnar við Andakílsárvirkjun Gunnar Gauti Gunnarsson, eigandi Árness starfsmannahúss er Guðrún Bjarnadóttir, eigandi Berskerseyri á Snæfellsnesi eru skráðir Össur Kristinsson, kenndur við stoðtækjaframleiðandann Össur, og kona hans Björg Rafnar og eigandi almannavarnarskýlisins í Mosfellsdal er Mosdal fasteignafélag ehf. DV greindi frá því að Skúli Gunnar Sigfússon, sem rekur Subway á Íslandi, hafi keypt minjasafn OR, með fyrirvara um breytingar á skipulagi. Hann hefur nú þegar leigt húsnæðið til Boot Camp heilsuræktar. OR er þó enn skráður eigandi. Þá keypti Skúli Mogensen, fjárfestir og stærsti eigandi MP banka, Hvamm og Hvammsvík, en hann hyggst stunda þar ferðaþjónusturekstur. OR er enn skráður eigandi samkvæmt fasteignaskrá. Hótel Hengil keypti eignarhaldsfélagið Sep ehf., sem er í eigu Sigurlaugar S. Hafsteinsson, sem búsett er í Sviss, að því er DV hefur greint frá. Hótelið er þó enn skráð eign OR hjá fasteignaskrá, þó kaupin séu frágengin.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira