Sagði upp þjónustusamningi við Tal vegna skulda 16. október 2011 19:45
Vodafone hefur sagt upp þjónustusamningi milli fyrirtækisins og Tals þar sem Tal skuldar Vodafone á þriðja hundrað milljónir króna. Í stefndi að rekstur Tals kæmist í uppnám vegna þessa en fyrirtækið hefur nú náð samkomulagi við Símann um fjarskiptaþjónustu. Í byrjun október ógilti Samkeppniseftirlitið samruna Vodafone og Tals, sem er í eigu Auðar fagfjárfestasjóðs, en það var niðurstaða eftirlitsins að samruninn myndi leiða til verulega aukinnar samþjöppunar á fákeppnismarkaði á sviði fjarskipta. Án íhlutunar yrði staðan sú að aðeins tveir stórir aðilar, Síminn og Vodafone, myndu bjóða heildstæða fjarskiptaþjónustu, auk þess sem nokkrir minni aðilar myndu veita þjónustu á tilteknum afmörkuðum sviðum.) Eftirlitið lítur svo á að Tal sé mikilvægur keppinautur bæði Símans og Vodafone þar sem félagið býður upp á heildarlausnir á sviði fjarskipta. Tal hefur stuðst við þjónustusamning við Vodafone, en fyrirtækið rekur ekki eigið fjarskiptakerfi. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Vodafone nú rift þessum þjónustusamningi við Tal, en Tal skuldar fyrirtækinu á þriðja hundrað milljónir króna. Var það meðal annars vegna þessara vanefnda sem Vodafone sagði samningnum upp. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu stefndi í að rekstur Tals yrði í nokkru uppnámi vegna þessa en án þjónustusamnings getur fyrirtækið ekki veitt viðskiptavinum sínum fjarskiptaþjónustu. Með öðrum orðum, þeir geta ekki hringt eða sent sms. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Tal átt í viðræðum við Símann um samtarf. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, sagði í samtali við fréttastofu í dag að Tal hefði náð samkomulagi við Símann um flest atriði er snúa að fjarskiptaþjónustu. Síminn hefði því tryggt Tal fjarskiptaþjónustu sem þýðir notendur fyrirtækisins lenda ekki í vandræðum. Þá sagði Sævar Freyr að á ákveðnum sviðum væri samstarf fyrirtækjanna þegar orðið virkt. Viktor Ólason, forstjóri Tals, er staddur erlendis. Hann staðfesti að Vodafone hefði sent Tal bréf og farið fram á riftun á fjarskiptasamningi milli fyrirtækjanna. Hann sagði hins vegar að ágreiningur væri milli Tals og Vodafone um þær fjárhæðir sem Vodafone telur Tal skulda. Viktor sagði að samningar við Símann myndu síðan tryggja að viðskiptavinir Tals myndu áfram njóta sömu þjónustu á sömu kjörum og þeir hafa í dag.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira