Spáir óbreyttum stýrivöxtum hjá Seðlabankanum 28. október 2011 10:10
Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum sínum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum 2. nóvember næstkomandi. „Reiknum við með því að nefndin haldi vaxtahækkunartóni sínum a.m.k. fram að þeim tíma er markverð hjöðnun verðbólgunnar er fram komin. Við reiknum með óbreyttum stýrivöxtum fram yfir mitt næsta ár. Til lengri tíma reiknum við með hækkun stýrivaxta bankans samhliða því að úr slakanum í hagkerfinu dregur og afnám gjaldeyrishafta þokast áfram,“ segir í Morgunkorni greiningarinnar. Síðan segir að þau rök sem peningastefnunefndin mun að mati greiningarinnar nota til að rökstyðja ákvörðun sína eru þessi helst: Verðbólguhorfur til skemmri og miðlungslangs tíma hafa batnað talsvert undanfarið og endurspeglast það í uppfærðri verðbólguspá Seðlabankans. Verðbólgan verður við markmið bankans innan tveggja ára. Verðbólgan lækkaði á milli september og október og hefur náð hámarki sínu í þessum verðbólgukúf. Líkur eru á því að verðbólgan verði í grennd við núverandi verðbólgustig næstu mánuði þar til hún tekur að hjaðna að nýju snemma á næsta ári. Verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafa lækkað nokkuð frá síðustu vaxtaákvörðun bankans. Gengi krónunnar hefur hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun bankans. Meiri samdráttur var í hagkerfinu á síðasta ári en bankinn reiknaði með og minni hagvöxtur á þessu ári. Eftirspurnarslakinn í hagkerfinu er því meiri en áður var búist við. Efnahagshorfur í helstu viðskiptalöndum hafa versnað nokkuð frá síðustu efnahagsspá bankans í ágúst síðastliðnum. Þetta dregur úr væntum hagvexti hér á landi og þar með hversu langvarandi slakinn í hagkerfinu verður.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira