Segja yfirlýsingu Arion banka um Pennann ranga 26. október 2011 18:32
Aðgerðahópur húsgagnasala hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir halda því fram að Arion banki hafi ekki greint rétt frá og að yfirlýsing þeirra um Pennann sé mjög villandi. Það er okkar mat að yfirlýsing bankans frá því í gær sé röng eða í besta falli mjög villandi enda virðist tilgangur hennar vera sá að leiða umræðuna frá kjarna málsins,“ segir í tilkynningunni en húsgagnasalarnir hafa gagnrýnt Arion banka verulega fyrir að dæla pening inn í Pennann á meðan aðrar verslanir í samkeppni þurfa að horfast í augu við kaldan veruleika efnahagsástandsins. Húsgagnasalarnir fagna hinsvegar yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins frá því í gær, um að málið sé til skoðunar. „Við munum veita því allar þær upplýsingar sem við getum auk þess sem til skoðunar er að skila inn formlegri kæru,“ segir í tilkynningunni sem má lesa hér fyrir neðan. Arion leikur sér að tölum Í yfirlýsingu frá Arionbanka frá í gær kemur fram að bankinn hafði aðeins lagt nýja Pennanum til 100 milljónir króna frá stofnun árið 2009 og að bankinn telji rekstur fyrirtækisins í lagi og að afkoma sé í takti við áætlanir. Þessar fullyrðingar standast ekki skoðun. Í ársreikningum Pennans fyrir árin 2009 og 2010, sem við höfum undir höndum, kemur fram allt önnur mynd af rekstri þessa fyrirtækis. EBIDTA Pennans (afkoma fyrir fjármagnsliði og afskriftir) er neikvæð um 24.618.146 krónur á þessum tveimur árum. Jafnframt liggur fyrir að Arionbanki hefur lagt Pennanum til 1.366.412.523 kr. í hlutafé og virðist það hafa verið greitt inn í félagið í þremur hlutum og hefur það fé að sjálfsögðu verið nýtt til rekstrar. Fyrir utan þessi framlög til Pennans, sem við eigum í óvæginni samkeppni við, hefur Arionbanki lánað félaginu umtalsverðar upphæðir á síðustu misserum. Þær upphæðir liggja ekki ljósar fyrir en viðurkennt er að Penninn fékk 500 milljónir króna lánaðar í febrúar 2011. Tap Pennans skv. ársreikningum 2009 og 2010 var samtals 1.035.382.907 króna. Slíkt tap þarf að fjármagna – hvaða nöfnum sem menn nefna þá fjármögnun. Hvort það eru fjármagnsliðir, afskriftir eða liðir eins og „endurskipulagning“ sem valda tapinu kemur það á sama stað niður á endanum. Fyrirtæki með slíkt tap þarf að hafa sterkan eiganda og þolinmóðan banka. Það er okkar mat að yfirlýsing bankans frá því í gær sé röng eða í besta falli mjög villandi enda virðist tilgangur hennar vera sá að leiða umræðuna frá kjarna málsins. Miðað við ofangreint spyrjum við okkur hvort tilmæli Samkeppniseftirlitsins um eðlilegar arðsemiskröfur bankans í þessu tilviki séu uppfylltar. Við hins vegar fögnum yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins frá því í gær um að málið sé til skoðunar. Við munum veita því allar þær upplýsingar sem við getum auk þess sem til skoðunar er að skila inn formlegri kæru. Kjarni okkar gagnrýni á vinnubrögð Arionbanka varðandi málefni Pennans er að endurskipulagning á fjárhag í raun gjaldþrota fyrirtækis hefur tekið allt of langan tíma. Okkur þykir það óeðlilegt að slíkt fyrirtæki hafi bolmagn til að standa í mikilli markaðssókn, m.a. með því að hrinda af stað auglýsingaherferðum upp á tugi milljóna króna og ráðast í opnun á glæsilegu húsnæði fyrir verslun sína á sama tíma. Við teljum að bankinn sé með innspýtingu á fjármagni í slíkan rekstur að reyna að ná meiri veltu til að gera fyrirtækið söluvænlegra en það ferli, sem spannar langan tíma, kemur auðvitað niður á samkeppnisaðilum.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira