Ráðherra neitar afskiptum af Bankasýslu ríkisins Höskuldur Kári Schram skrifar 24. október 2011 18:30
Stjórn Bankasýslu ríkisins fór þess leit við fjármálaráðherra í dag að vera leyst frá störfum. Í bréfi sem stjórnin sendi ráðherra kemur fram að umræðan um ráðningu nýs forstjóra hafi vegið að trúverðugleika bankasýslunnar og rofið friðinn um starfsemi hennar. Ráðning Páls Magnússonar í starf forstjóra Bankasýslu ríkisins hefur verið harðlega gagnrýnd. Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar, og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sagði hana vera hneyksli og til þess fallna að rýra trúverðugleika stofnunarinnar. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, óskaði í kjölfarið eftir upplýsingum frá stjórn bankasýslunnar um ráðningarferlið og hvernig umsækjendur voru metnir. Stjórnin hefur hingað til varið þá ákvörðun að ráða Pál Magnússon og meðal annars vísað til þess að í ráðningarferlinu hafi verið stuðst við viðurkenndar matsaðferðir og mælingar. Þetta hefur ekki dugað til að skapa frið um stofnuna og því ákvað stjórnin í dag að óska eftir því að vera leyst frá störfum. Í bréfi sem stjórnin sendi fjármálaráðherra, segir meðal annars að það sé niðurstaða stjórnarmanna að afskipti utanaðkomandi afla geri þeim ókleift að starfa áfram á þeim faglega grundvelli sem sé nauðsynlegur. Í áðurnefndri umræðu hafi verið vegið að trúverðuleika bankasýslunnar og friður rofinn um starfsemi hennar. Er sérstaklega vísað í viðbrögð alþingismanna í þessu samhengi. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir það miður að stjórnin hafi ákveðið að segja af sér. „Það er auðvitað þeirra ákvörðun, þeirra niðurstaða og ekkert annað að gera nema vinna samkvæmt því og verkefnið þá væntanlega að skipa nýja stjórn sem fyrst þannig að það verði lágmarkstruflun á starfsemi bankasýslunnar,“ segir Steingrímur. Varst þú búinn að óska þess eða fara þess á leit við stjórnarmeðlimi að þeir myndu segja af sér? „Nei,“ svarar Steingrímur. Ákvörðun stjórnar bankasýslunnar kemur þó ekki í veg fyrir að Páll Magnússon taki við starfi forstjóra. Er eðlilegt að þínu mati að Páll Magnússon taki við starfi forstjóra eftir að stjórnin er búinn að segja af sér? „Ég ætla bara að halda mig við það sem ég hef sagt að það er eðlilegt að það ríki friður um svona starfsemi og það hefur ekki tekist vel til fyrst að stjórnin telur sig knúin til að segja af sér. Það eru vonbrigði en við vinnum auðvitað úr því,“ segir Steingrímur.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira