Alls 14 þúsund samningar sem þarf að skoða JMI skrifar 21. október 2011 19:18
Fjármögnunar- og fjármálafyrirtækin þurfa nú að taka afstöðu til fjórtán þúsund fjármögnunarleigusamninga eftir að dómur Hæstaréttar í máli Kraftvélaleigunnar féll í gær. Lýsing hefur lýst því yfir að samningar þess standi óbreyttir þar til dómur fellur í þeirra eigin máli. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að þegar ákvæði og skilmálar svokallaðra fjármögnunarleigusamninga sem Glitnir, gerði við Krafvélaleiguna, væri samningurinn í raun gengistryggður lánssamningur sem væri ólögmætur. Þau fjármögnunarfyrirtæki sem veittu slíka samninga þurfa því nú að endurreikna lánin með tilliti til dómsins, en samtök iðnaðarins segja þetta mikið hagsmunamál fyrir fyrirtækin, en samningarnir voru oftst gerðir um vinnuvélar. Arion Banki og drómi, sem er félag sem var stofnað utan um þrotabú Frjálsa fjárfestingabankans og SPRON, gerðu enga fjármögnunarleigusamninga og þurfa því ekki að endurreikna neitt. Glitnir gerði fimm þúsund samninga við ellefu hundruð lögaðila en Íslandsbanki, sem tók við samningunum, segist nú ætla að fara yfir dóm Hæstaréttar og tilkynna síðar hvernig málum verði háttað við framkvæmd endurútreikninga. Lýsing gerði sex þúsund og fimm hundruð samninga við sextán hundruð viðskiptavini, en fyrirtækið tilkynnti í dag að samningur Íslandsbanka sem dómur Hæstaréttar fjallaði um vera í veigamiklu atriðum frábrugðinn samningum Lýsingar. Samningar Lýsingar séu skýrir leigusamninga en ekki lánasamningar og því verði beðið eftir niðurstöðu Hæstaréttar í máli um samninga Lýsingar sem kveða ætti upp á fyrri hluta næsta árs. SP fjármögnun, sem nú tilheyrir Landsbankanum, gerði tvö þúsund og fimm hundruð samninga við um það bil 700 viðskiptavini, en bankinn er enn að fara yfir dóm Hæstaréttar og meta næstu skref í málinu. Alls eru því fjórtán þúsund samningar við um það bil þrjú þúsund og fjögur hundruð lögaðila nú til skoðunar í kerfinu.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira