Tólf grunaðir innherjar rannsakaðir Magnús Halldórsson skrifar 31. október 2011 18:30 Ólafur Þór Hauksson, er sérstakur saksóknari mynd/úr safni
Embætti sérstaks saksóknara hefur nú til rannsóknar tólf mál þar sem grunur leikur á innherjasvikum. Málin tengjast með einum eða öðrum hætti starfsemi föllnu bankanna þriggja. Málin eru ekki langt komin í rannsókn að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks sóknara. Hann vildi ekki tjá sig um málin að svo stöddu eða skýra nánar efnisatriði þeirra. Aðeins einu sinni hefur maður verið fundinn sekur um innherjasvik hér á landi. Það var Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, en hann var dæmdur í héraði í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir að selja hlutabréf í Landsbankanum fyrir 192 milljónir króna á sama tíma og hann bjó yfir innherjaupplýsingum. Baldur áfrýjaði niðurstöðunni til Hæstaréttar og er þess nú beðið að málið verði tekið fyrir í Hæstarétti. Ekkert dómafordæmi er fyrir hendi úr Hæstarétti þegar kemur að innherjamálum og mun efnisleg niðurstaða réttarins því ráða miklu um hvernig tekið verður á málum sem þessum. Embætti sérstaks saksóknara, sem sameinaðist efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra nýverið, hefur nú til rannsóknar um 200 mál. Þar af komu 86 mál frá efnahagsbrotadeildinni. 90 mál voru þá fyrir til rannsóknar hjá embættinu, sem öll tengdust falli bankanna. Á undanförnum vikum og mánuðum hafa slitastjórnir, skiptastjórar og skattayfirvöld vísað 24 málum til embættisins vegna gruns um lögbrot. Þau mál eru nú til rannsóknar hjá embættinu.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira