Mögulegt að semja við einkaaðila um nýja ferju Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. október 2011 17:08 Herjólfur hentar ekki til siglinga á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.
Til greina kæmi að einkaaðili myndi kaupa nýja ferju til að sigla á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja og gera samning við ríkið um siglingarnar. Þetta segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri. Þá yrði hugsanlega hægt að fá nýja ferju fyrr en ef ríkið þyrfti að fjármagna hana. Engum dylst að Herjólfur, sem nú er notaður í siglingarnar, hentar ekki til siglinga í Landeyjahöfn og hefur fjölmörgum ferðum þangað verið aflýst. Herjólfur er í eigu ríkisins, en ríkið hefur gert samning um rekstur hans við Eimskip. Eimskip sendi svo í gær frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að fyrirtækið er búið að láta frumhanna nýja ferju sem myndi kosta tæpa 4 milljarða og yrði afhent eftir 18-24 mánuði. Í tilkynningunni segir að Eimskip sé tilbúið að skoða nánar með Vegagerðinni að koma að fjármögnun og byggingu ferjunnar. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri er ekki alveg eins bjartsýnn og Eimskip. Hann segist telja að það tæki að lágmarki þrjú ár að fá nýja ferju í notkun. „Það tekur tvö ár að smíða skipið og það tekur að minnsta kosti ár að taka þær ákvarðanir sem þarf áður en lagt er af stað í að hanna skip,“ segir Hreinn. Hann segir að það komi til greina að gera samning við eitthvað einkafélag eins og hugmyndir Eimskips ganga út á. „Það þarf þá að gera nokkuð langan samning þannig að eitthvað félag fari að fjárfesta í því,“ segir Hreinn. Gert er ráð fyrir að ný ferja kosti um fjóra milljarða en Hreinn telur að hægt væri að fá milljarð upp í þann kostnað með því að selja Herjólf.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira