Héðinsfjarðargöng fóru langt fram úr áætlun 9. nóvember 2011 12:04 Það var mikið um dýrðir þegar Héðinsfjarðargöng voru opnuð. Kostnaður við þau fór langt fram úr áætlunum.
Héðinsfjárðargöng kostuðu tæplega 16 milljarða, 17% meira en áætlað var. Þetta kemur fram á vef Vegerðar ríkisins. Kostnaðurinn skýrist fyrst og fremst vegna aukins kostnaðar vegna vatns í Ólafsfjarðarhluta ganganna. „Efnahagshrunið sem varð hér árið 2008 hjálpaði heldur ekki til,“ segir í fréttinni á vef Vegargerðarinnar. Enn fremur segir í fréttinni að kostnaður við Bolungarvíkurgöng hafi staðist áætlun nokkuð nákvæmlega. Orðrétt segir í fréttinni á vef Vegargerðarinnar: „Í umræðu um kostnað við gangagerð, nú síðast á opnum nefndarfundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, hefur því ranglega verið haldið fram að umframkostnaður við þessi göng hlaupi á jafnvel 80-90 prósentum. Því fer fjarri. Líklega hefur þetta komist inn í umræðuna með því að menn hafi tekið upphaflegu áætlunina og látið vera að umreikna hana til verðlags og borið síðan saman við endanlegan kostnað á allt öðru verðlagi. Í verksamningum vegna byggingar ganganna eru ákvæði um að verkin séu verðbætt miðað við þróun byggingarvísitölunnar, líkt og gert er í öllum stærri verksamningum. Uppreiknaður kostnaður við Héðinsfjarðargöng til verðlags í dag nemur 15.490 millj. kr. Áætlunin var á sínum tíma (2006) 7.500 millj. kr og uppreiknuð til sama verðlags reynist hún 13.220 millj. kr. Þannig er kostnaður umfram áætlun 17,2 prósent. Byggingarvísitalan var 316,7 stig í janúar 2006 þegar áætlunin var gerð en er nú í nóvember 2011 558,2 stig. Sé kostnaður við Bolungarvíkurgöng uppreiknaður á sama hátt þá reynist hann 7.460 millj. kr. Áætlunin á sínum tíma (2007) hljóðaði upp á 5.070 millj. kr og umreiknað til verðlags í dag reynist áætlunin því vera 7.510 millj. kr eða nánast það sama og raunkostnaðurinn. Reyndar lægri ef eitthvað er. Byggingarvísitalan var 367,7 stig í nóvember 2007 þegar áætlunin var gerð en er nú nóvember 2011 558,2 stig.“
Mest lesið „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Sjá meira