Sveinbjörn sleit krossband í Grindavíkurleiknum - ekki meira með í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2011 17:02 Sveinbjörn Claessen. Mynd/Stefán
Sveinbjörn Claessen, fyrirliði ÍR í Iceland Express deild karla í körfubolta, mun ekki spila með liðinu meira á þessu tímabili eftir að í ljós kom að hann sleit krossband í leik á móti Grindavík á dögunum. Sveinbjörn sleit krossband í hægra hné en fyrir tveimur árum lenti Sveinbjörn í sömu meiðslum á vinstra hné og var frá æfingum allt það tímabil. Sveinbjörn missti einnig af stórum hluta síðasta keppnistímabils vegna meiðsla. „Það er hverjum íþróttamanni erfitt, sem ætlar sér langt, að upplifa slík meiðsli, hvað þá í tvígang á skömmum tíma. Það þarf ekki að hafa mörg orð um hversu erfitt verður að fylla skarð Sveinbjörns í ÍR-liðinu en hann er mikill íþróttamaður og mun koma síðar til leiks, enn sterkari. Hans verður sárt saknað í vetur," segir í fréttatilkynningu frá ÍR-ingum. Sveinbjörn Claessen, sem er 25 ára bakvörður, var búinn að vinna sér sæti í íslenska landsliðinu þegar hann meiddist fyrir tveimur árum. Hann var með 13,5 stig og 6,0 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu tveimur leikjum ÍR í Iceland Express deildinni í vetur.
Dominos-deild karla Mest lesið EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Brottreksturinn kom Horner í opna skjöldu Formúla 1 Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Körfubolti Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid Fótbolti Sengun í fantaformi í sumarfríinu Körfubolti Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Körfubolti Hélt fótboltabúðir fyrir hinsegin ungmenni Sport Dagskráin í dag: Íslenskir Evrópuleikir Sport Fleiri fréttir Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Sjá meira