Landsbankinn veitir 15 milljónum til nýsköpunar 1. nóvember 2011 09:57
Búið er að úthluta 15 milljónum króna í nýsköpunarstyrki í fyrsta sinn úr Samfélagssjóði Landsbankans. Fyrirhugað er að úthluta nýsköpunarstyrkjum árlega. Í tilkynningu segir að veittir voru sjö styrkir að upphæð 1 milljón króna hver og tuttugu styrkir að fjárhæð 400 þúsund krónur hver. Dómnefnd var skipuð Margréti Kristmannsdóttur framkvæmdastjóra Pfaff, Óla Halldórssyni forstöðumanni Þekkingarseturs Þingeyinga, Rögnvaldi Jóhanni Sæmundssyni dósent við HR, Magnús Jónssyni útibússtjóra Landsbankans í Árbæ og Finni Sveinssyni sérfræðingi hjá Landsbankanum í samfélagslegri ábyrgð en hann var jafnframt formaður dómnefndar.Nýsköpunarstyrkjunum er ætlað að styðja við frumkvöðla til að þróa nýjar viðskiptahugmyndir, nýta eldri viðskiptahugmynd á nýju markaðssvæði eða skapa nýja vöru. Styrkirnir eru jafnframt ætlaðir til kaupa á efni, tækjum eða sérfræðiþjónustu vegna nýsköpunar eða til að sækja námskeið sem nýst geta í starfi. „Markmið nýsköpunarstyrkja Landsbankans er styðja við frumkvöðlastarf. Þáttur nýsköpunar er mikilvægur fyrir uppbyggingu atvinnulífsins, til að stuðla fjölbreytileika og að styrkja eldri atvinnugreinar," segir Jensína K. Böðvarsdóttir framkvæmdastjóri Þróunar hjá Landsbankanum. "Landsbankinn hefur sett á fót nýsköpunarþjónustu og ráðist í nýsköpunarátak með Innovit sem felst í því að halda Atvinnu- og nýsköpunarhelgar vítt og breitt um landið og með þessu móti vonumst við til að geta stutt vel við bakið á vænlegum viðskiptahugmyndum og eigendum þeirra.“
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira