Jón Arnór fór á kostum í sigri á Hauki Helga og félögum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2011 13:11 Jón Arnór í leik með KR árið 2009.
Jón Arnór Stefánsson skoraði 20 stig þegar að lið hans, CAI Zaragoza, vann góðan útisigur á Assignia Manresa, 81-74, í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Haukur Helgi Pálsson skoraði sex stig fyrir Manresa en hann var með 100 prósenta skotnýtingu í dag. Óhætt er að segja að þetta sé besti leikur Jóns Arnórs á tímabilinu til þessa en hann var næst stigahæsti maður Zaragoza. Þar að auki tók hann tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Skotnýtingin hans var frábær, en hann setti niður fjórar af fimm þriggja stiga tilraunum sínum og alls átta af tíu skotum sínum í leiknum. Staðan var jöfn, 68-68, þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka en þá tóku gestirnir frá Zaragoza leikinn í sínar hendur. Jón Arnór kom sínum mönnum í 74-70 og eftir það var eftirleikurinn auðveldur. Staðan í hálfleik var 35-29, Manresa í vil en Zaragoza gerði út um leikinn með frábærum fjórða leikhluta er liðið skoraði 34 stig gegn 21 frá heimamönnum. Þetta var fyrsti Íslendingaslagurinn í spænsku úrvalsdeildinni, sterkustu körfuboltadeild Evrópu. Haukur Helgi hefur lítið fengið að spila upp á síðkastið en kom öflugur inn í dag með því að setja niður tvo þrista í tveimur tilraunum á þeim átta mínútum sem hann fékk. Voru það einu skottilraunir hans í leiknum. Bæði lið eru með átta stig eftir átta leiki og eru um miðja deild.
Körfubolti Mest lesið Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti Lést 26 ára gamall eftir baráttu við áfengi og þunglyndi Sport „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn „Ennisbandið var slegið af honum“ Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“ Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Sjá meira