Sport

Ragna gaf úrslitaleikinn á alþjóðlega velska mótinu.

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragna Ingólfsdóttir.
Ragna Ingólfsdóttir.
Ragna Ingólfsdóttir varð að gefa úrslitaleikinn á alþjóðlega velska mótinu í badminton en hún hafði spilað frábærlega á mótinu og unnið alla átta hrinur sínar.  

Hún tognaði á læri í undanúrslitaleiknum í gær og gaf því úrslitaleikinn gegn andstæðingi sínum sem var Nicole Schaller frá Sviss.  Ragna og Schaller hafa ekki mæst áður en Ragna er númer 66 á heimslistanum en Schaller er númer 144.

Ragna fer því ekki á alþjóðlega írska mótið um næstu helgi eins og til stóð. Næsta mót sem Ragna keppir í er alþjóðlega sænska mótið 19. – 22. janúar næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×